Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2006, Page 49

Frjáls verslun - 01.07.2006, Page 49
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 49 BYRJAÐ MEÐ HREINT BORÐ að vera með skemmtilegt, fjölbreytt, upp- lýsandi, gagnrýnið og fróðlegt efni. Það er það sem skiptir máli. Það verður alltaf að skipa liðið því fólki sem maður telur að sé líklegt til þess að búa til þá fjölmiðla sem maður vill að séu búnir til. Það er að segja fjölmiðla sem eru eftirsóttir. Það þarf að vera með fólk sem er líklegt til að fram- fylgja þeirri stefnu sem félagið hefur varð- andi útgáfuna.“ Um 20.000 áskrifendur Sigurður, Elín Guðrún Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, og Mikael Torfason aðalritstjóri eiga Birtíng. Birtíngur keypti útgáfuréttinn á tíma- ritum Fróða en ekki félagið sjálft. „Það er betra fyrir okkur, enda ýmis ágreiningsmál óleyst milli Fróða og þrotabúsins sem átti útgáfuréttinn á undan Fróða. Inn í þann ágreining vildum við ekki blanda okkur. Við vildum byrja með hreint borð og þetta var einfaldasta leiðin til þess.“ Áætlanir eru um að efla útgáfustarfsem- ina og bendir Sigurður á að það felist í ýmsu. „Við ætlum ekki að fjölga tímaritunum. Í það minnsta ekki fyrst í stað. Hins vegar gæti orðið breyting á þeim. Það er hlutur sem þarf að skoða hverju sinni og það er vinna sem er að fara í gang. Áskrifendur að tímaritunum eru rúmlega 20.000 og það má ugglaust efla sölu tímarita til þeirra.“ Aðspurður um nýja nafnið – Birtíngur – segir Sigurður að það sé fyrst og fremst fallegt nafn og bendir á að það sé skrifað upp á rithátt Laxness – með „í“. „Þeir sem hafa lesið sögu Voltaires í þýðingu Halldórs Laxness vita að sú saga er bæði fyndin og fróðleg og í henni er mikil ádeila á stjórnarhætti þess tíma. Við viljum að tímarit Birtíngs verði skemmtileg, fróðleg, upplýsandi og gagnrýnin án þess að meiða nokkurn mann.“ Úr eigin vasa Sigurður útskrifaðist úr lagadeild Háskóla Íslands árið 1981. Hann fór að vinna í tengslum við fjölmiðla árið 1988 og síðan þá hefur hann unnið meira og minna sem lögfræðingur fyrir eigendur fjölmiðla, setið í stjórnum þeirra og komið að rekstri þeirra. „Ég var fyrst lögfræðingur Íslenska útvarpsfélagsins þegar það rak bara Bylgj- una. Síðan varð ég lögfræðingur Íslenska útvarpsfélagsins og Stöðvar 2 eftir að þau félög sameinuðust. Ég varð eigandi í því félagi árið 1990 til ársins 2004 þegar nýir eigendur tóku við rekstrinum. Ég var nýhættur í starfi framkvæmda- stjóra hjá Norðurljósum þegar við Karl Garðarsson skoðuðum hvaða möguleikar væru á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Fróði var það fyrsta sem okkur datt í hug að skoða. Það varð ekkert úr samningum þá. Í framhaldi af því fórum við að vinna að útgáfu Blaðsins sem varð að raunveruleika 6. maí 2005. Við seldum helmingshlut í því til Árvakurs í desember síðastliðnum. Á endanum kláruðum við Elín Guðrún samninga við eigendur Fróða um að kaupa útgáfuréttinn á tímaritunum.“ Sumir hafa velt því fyrir sér hvort Sig- urður hafi sjálfur keypt útgáfuréttinn eða hvort einhverjir aðrir standi þar að baki. „Ég geri þetta sjálfur með fólki sem ég treysti og þekki af góðu einu frá árum mínum sem framkvæmdastjóri Norðurljósa. Líkt og ég gerði þegar ég fjárfesti í Ári og degi, útgef- anda Blaðsins. Þegar við Karl Garðarsson og Steinn Kári Ragnarsson vorum að ýta því félagi úr vör var því haldið fram að á bak við okkur stæðu einhverjir fjársterkir aðilar sem ekki vildu láta bendla sig við félagið, því að ekki ættum við neina pen- inga og gætum því ekki lagt fé til félagsins. Ætli þetta sé ekki sama gamla lumman afturgengin. Við borguðum hlutafé okkar í Ári og degi úr eigin vasa og fengum ágætis ávöxtun á það þegar við seldum helming þess hálfu ári síðar.“ Raunhæfar áætlanir Sigurður er nú orðinn einn stærsti eig- andi Birtíngs, á útvarpsstöðvarnar XFM 90,9 og Kissfm 89,5 og hlut í Blaðinu auk þess að eiga hlut í fjarskiptafyrirtækinu Hive en þar er hann stjórnarformaður. Þá er hann í stjórn Öflunar sem á Apple- verslanir á Íslandi, Danmörku og Svíþjóð. Hann hyggur ekki á frekari landvinninga á fjölmiðlamarkaðnum. Þó Sigurður hafi lítið unnið við hefð- bundna lögmennsku - það er að segja málflutning eða svokölluð hefðbundin lög- mannsstörf � þá er hann með viðskiptavini á sínum snærum. Hann hefur til dæmis unnið lengi fyrir Sund sem er stórt fjárfest- ingarfélag. Aðspurður hvers vegna hæstaréttarlög- maðurinn hefur einbeitt sér að fjölmiðlum segir hann: „Ætli ég sé ekki með einhvers konar fjölmiðlabakteríu. Fjölmiðlar hafa heillað mig frá því ég byrjaði að vinna við þá enda á hverjum degi verið að fást við að skapa eitthvað nýtt og því ríkir engin lognmolla í rekstri þeirra.“ Sigurður segir að það sé von sín að þær áætlanir, sem hann og félagar hans hafa gert um tekjur og gjöld tímaritaútgáfu Birt- íngs, muni tryggja tilvist og framtíð þeirra. „Við erum búin að gera áætlanir fyrir næsta ár og í raun næstu ár sem byggðar eru á miklum upplýsingum um rekstur Fróða og forvera þess félags. Við erum með örugga prent- og dreifingarsamninga. Við þekkjum sölutölurnar frá gamalli tíð og teljum okkur því geta gert raunhæfar áætlanir. Þær áætl- anir, sem við höfum gert, eiga að skila Birt- íngi réttum megin við strikið.“ TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR MYND: GEIR ÓLAFSSON S I G U R Ð U R G . G U Ð J Ó N S S O N O G B I R T Í N G U R FV.07.06.indd 49 7.9.2006 12:54:27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.