Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 70
70 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
S U M A R B Ú S T A Ð I R
Grímsnes- og Grafningshreppur 2337
Bláskógabyggð 2021
Borgarbyggð 1049
Kjósarhreppur 647
Skorradalshreppur 597
Hvalfjarðarstrandarhreppur 419
Mosfellsbær 372
Borgarfjarðarsveit 312
Ísafjarðarbær 234
Reykjavíkurborg 212
í Rangárvallasýslu svo að ekki sé minnst
á lóðir víða á Vesturlandi. Sumarhúsum
landsmanna getur því átt eftir að fjölga
verulega á næstunni!
Offramboð hlýtur að leiða til lækkunar
„Þetta bendir til þess að nú sé verið að und-
irbúa sölu á jafnmörgum bústöðum fyrir
austan fjall og þegar eru fyrir á svæðinu,“
segir Sveinn.
- Hvaða áhrif hefur það á verðið?
„Ég vil meina að þetta offramboð hljóti að
leiða til lækkunar á lóðaverði. Séu menn
að kaupa hálfan hektara í Dagverðarnesi
á 5-7,5 milljónir þá er það sama verð og
menn greiddu fyrir sumarhús og lóð með
öllu fyrir tveimur árum. Staðreyndin er sú
að núna eru hús með lóð að fara á 15-16
milljónir. Það er kannski ekki óeðlileg tala
miðað við það hvernig bústaðir eru byggðir
í dag, þ.e. 100 fermetra heilsárbústaðir með
öllu tilheyrandi.“
- Þegar skoðaðar eru sumarhúsa-
auglýsingar í fasteignablöðunum
virðist ekki vera mikið samræmi í
verðlagningunni, misstór hús, sama
hvort þau eru á leigu- eða eign-
arlóðum á góðum grónum stöðum,
eru auglýst á svipuðu eða sama
verði. Er þetta eðlileg verðlagning?
„Vissulega ætti stærð og staðsetning að
endurspeglast í verði bústaðanna, en svo er
ekki alltaf. Oft er verðið það sama og mér
finnst það ekki eðlilegt. Eigi menn ekki
landið verða þeir líklega að greiða um 50
þúsund á ári fyrir það, og 200-500 þúsund
kr. í upphafi þegar landið er tekið á leigu.
Síðan getur verið undir hælinn lagt hvort
menn fá að framlengja leigutímann þegar
að því kemur. Ég tel að bústaðir á leigu-
lóðum ættu að vera þrem til fjórum millj-
ónum ódýrari en bústaðir á eignarlandi,
miðað við að allt annað sé sambærilegt. Þá
er ég ekki að verðleggja lóðirnar sem slíkar
heldur öryggið sem fylgir því að eiga lóð í
stað þess að leigja.“
Helmings hækkun
- Til skamms tíma var verð á góðum
sumarbústað um 7 milljónir en virð-
ist nú vera komið í eða að nálgast
15 milljónir. Hversu stór er slíkur
bústaður?
„Það er verið að selja eða að reyna að selja
60 fermetra hús á þessu verði þótt þau séu
ekki ný.“
- Hvort myndir þú telja hagstæðara
að byggja bústað á nýju landið eða
kaupa gamlan bústað?
„Það er nú það. Vissulega má hugsa sér að
sú mikla verðhækkun sem átt hefur sér
stað hafi að einhverju leyti verið leiðrétt-
ing. Sumarhús voru ekki alltaf að seljast á
raunvirði eða seldust hreint ekki. Ég held
kannski að verðið sem sett er á húsin í dag
sé nærri lagi þegar horft er í kostnaðinn við
bygginguna. Það má setja upp reiknings-
dæmi: Landið er keypt á 2 milljónir hámark,
annað er fárránlegt, því jafnvel er hægt að
fá lönd fyrir eina milljón. Grunnkostnaður
með landi er því um tvær milljónir og húsið
gæti kostað 10 milljónir. Við þetta bæt-
ist veitukostnaður. Þeir sem selja bústað-
inn á 15 milljónir eru ekki að fá mikið í
aðra hönd. Fyrir þremur árum borgaði sig
að kaupa gamalt og dytta að húsinu eftir
þörfum. Þá gátu menn verið að fá ágætis
sumarhús fyrir miklu lægri upphæðir en ég
held að sú staða sé ekki uppi í dag.“
Meðalstærð og föst búseta
- Hver er meðalstærð sumarhúss?
„Engin lög gilda um hámarksstærð sum-
arhúsa en stærðin byggist á deiliskipulagi
á hverjum stað sem líta má á sem stjórn-
skipan staðarins. Standi í deiliskipulagi að
ekki megi byggja nema 60 fermetra hús,
einlyft og í jarðlitum, gildir það. Áður voru
það lögin sem ákváðu stærðina og bústaðir
voru yfirleitt ekki mikið yfir 50 fermetra.
Ég held að núna sé meðalstærðin 60-65
fermetrar en vissulega fór af stað einhver
tryllingur og fólk stækkaði og stækkaði
HVERS VEGNA LEIGULÖND?
Ef litið er á leiguumhverfi sumarbústaða í
sögulegu samhengi kemur í ljós að fyrir mörgum
áratugum gátu jarðeigendur ekki selt hlut eða
hluta úr jörðum sínum því við það hefði skapast
sameign. Af því leiddi að þeir leigðu mönnum
landspildur til ákveðins tíma. Í örfáum tilvikum
var leigutíminn 99 ár, en 50 ár voru algeng og
25 ára leigutími algengastur. Með tilkomu deili-
skipulaga var mönnum gert kleift að selja hluta
úr jörðunum og hefur það orðið æ algengara síð-
ustu ár. Nú er svo komið að þeir sem leigðu lönd
eru farnir að líða fyrir það þegar nýir eigendur
vilja selja þeim löndin á uppsprengdu verði í stað
þess að endurnýja leigusamningana.
Sumarbústaðir voru yfir 200 talsins á eftirtöldum stöðum 31. desember 2005:
FV.07.06.indd 70 7.9.2006 12:55:59