Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2006, Page 95

Frjáls verslun - 01.07.2006, Page 95
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 95 Aðalheiður Karlsdóttir er löggiltur fasteignasali. „Ef ég fæ ekki mitt í gegn - stofna ég bara stjórnmála- flokk!“ Í átökum fyrir 1990 um yfirráð útgáfufyrirtækisins Mondadori, sem átti meðal annars dagblöð og virt tímarit, er sagt að Silvio Berlusconi hafi haft í hótunum við stjórnmálamenn um að stofna bara stjórnmálaflokk ef sett yrðu lög sem takmörkuðu möguleika hans á fjölmiðlayfirráðum. Berlusconi sniðgekk þó lögin með því að gefa bróður sínum hluta fjölmiðlaveld- isins, en það, sem hljómaði þá eins og örvæntingarfullur brandari, gekk eftir – og enginn hlær lengur að Berlusconi. Eftir metuppsveiflu og brösugan stjórn- artíma sem aðeins stóð í níu mánuði 1994 komst Berlusconi aftur til valda eftir kosningarnar 2001 og sló öll met með því að ná að sitja út kjörtímabilið, heil fimm ár. Það munaði mjóu að hann hefði af annan kosningasigur sl. vor, tapinu tók hann með aðdróttunum um kosningasvik, gerði allt til að tefja fyrir og hindra stjórnarmyndun Romano Prodis og vinstri vængsins. Spurningin er hver framtíð Berlusconis verði í ítölskum stjórnmálum – og hvenær Ítalíu takist að ná af sér spurning- armerkinu sem erlendir fjölmiðlar setja iðulega við framvinduna á Ítalíu. Laumutrúbadúrinn Berlusconi er fæddur í Mílanó 1936, verður sjötugur í haust. Undirbúningur afmælisins stendur yfir – í sumar lýsti Berlusconi því yfir að hluti af afmælinu yrði útgáfa á nýjum geisladiski, öðrum diskinum hans, þar sem hann syngur ný og gömul lög. Á undanförnum árum hefur Berlusconi troðið upp reglulega með napólítönskum trúbadúr, Mariano Apicella, sem Berlusconi rakst eitt sinn á. Happadráttur fyrir trúbadúrinn sem hefur öðlast einstök söngtækifæri sem hirðsöngvari og meðleikari Berlusconis þegar hann skemmtir stjórnmálaleiðtogum og vinum. Faðir Berlusconis var starfsmaður í litlum banka sem síðar komst í leitarljós yfirvalda fyrir að þvo mafíupen- inga. Eftir lögfræðipróf fór Berlusconi út í verktaka- starfsemi með lán frá bankanum þar sem pabbinn vann. Umsvifin báru lítinn árangur en Berlusconi hafði stærri áform á prjónunum sem hann fékk fjármögnuð af fjár- festingarfyrirtæki í Sviss. Uppruni þeirra peninga hefur aldrei að fullu orðið ljós en ein getgátan er að þeir hafi tengst ítalska Sósíalistaflokknum sem stýrði Ítalíu í helm- ingaskiptum með kristilegum demókrötum eftir stríð. Það eru ekki til þau skuggasamtök á Ítalíu sem Berlusconi hefur ekki verið bendlaður við. Mafíutengslin hafa iðulega orðið umfjöllunarefni fjölmiðla – en aldrei neitt sannast þó að nóg sé af skrýtnum vísbendingum. Mafíuleiðtoginn Vittorio Mangano bjó í villu Berlusconis sem umsjónarmaður hennar – undarlegt starf fyrir stór- Birtingarmynd ítalska kunningjaþjóðfélagsins: L U N D Ú N A P I S T I L L S I G R Ú N A R TEXTI: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR Silvio Berlusconi tók kosningaósigrinum ekki þegjandi. Hann reyndi af alefli að hindra nýja mið-vinstristjórn Prodis, en náði þó að semja um að nánasta samstarfsmanni sínum, dæmdum fyrir spillingu, yrði sleppt úr fangelsi. BERLUSCONI FV.07.06.indd 95 7.9.2006 13:00:42
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.