Frjáls verslun - 01.07.2006, Page 101
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 101
Frjáls verslun fyrir 31 ári:
Verslunin Kokka er full
af flottum hlutum í
eldhúsið. Meira að
segja piparkvarn-
irnar eru svolítið
sérstakar. Kvarnirnar
eru úr ryðfríu stáli
en þetta þarfaþing
fæst í ýmsum gerðum
hvað útlitið áhrærir
– úr stáli, við... Allar
piparkvarnirnar eru
framleiddar hjá
franska fyrirtækinu
Peugeot.
Hjá starfsmanni
Kokku fengust
þær upplýsingar
að Peugeot hefur framleitt
piparkvarnir frá 1840.
Gæðin eru mikil og er
30 ára ábyrgð á kvörn-
unum. Verkið í kvörn-
unum ku vera lykillinn
að velgengninni. Verkið
er í stöðugri þróun og er
hægt að stilla grófleika
mölunar. Þess má geta
að verkið er sérstaklega
hannað til að mala
þurrkuð piparkorn. Það
er stillanlegt þannig
að hægt er að mala
gróft fyrir piparsteikina
eða fínt fyrir fíngerðar
sósur.
Katrín Olga Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri einstaklingssviðs
hjá Símanum, segist yfirleitt vera
dugleg að ferðast í sumarfríinu.
„Við ferðumst bæði innanlands
og í útlöndum en reynum frekar
að fara utan áður en sumarið
byrjar á fullu hér á Íslandi svo
sem í lok maí eða byrjun júní.
Ítalía hefur verið vinsæl hjá
okkur en við breyttum til í ár.“
Katrín og fjölskylda fóru víða
þetta sumarið. „Fyrst fór stór-
fjölskyldan til Spánar í tilefni af
sjötugsafmæli móður minnar og
þar vorum við í viku. Við leigðum
hús í skemmtilegum bæ sem
heitir Moriara.“
Eftir Spánarferðina fór Katrín
ásamt eiginmanninum, tveimur
börnum, foreldrum, tengda-
foreldrum og lítilli frænku til
Danmerkur. Þar var farið á
Robbie Williams tónleika í
Parken í Kaupmannahöfn.
„Síðan fórum við í hefð-
bundna ferð til afa og ömmu í
Bolungarvík og áttum þar dek-
urdaga; þetta er betra en fimm
stjörnu hótel.
Aftur fögnuðum við 70 ára
afmæli móður minnar með
útilegu á Snæfellsnesi með „hele
familien“.
Við áttum síðan góða daga
í Skriðufelli í Þjórsárdal í góðra
vina hópi.“
Katrín segir að í sumarfrí-
unum reyni hún að „kúpla“ sig
frá vinnu með því að gera eitt-
hvað eftirminnilegt og ná góðri
hvíld.
Þegar hún er spurð hvað sum-
arfríið sé í huga hennar segir
hún: „Að hafa gaman og njóta.“
Katrín og fjölskylda. Myndin var tekin á Þingvallavatni.
Sumarfríið:
AÐ HAFA GAMAN OG NJÓTA Hönnun:
FYRIR PIPARSTEIKINA
OG SÓSUNA
FV.07.06.indd 101 7.9.2006 13:01:08