Frjáls verslun - 01.07.2006, Page 102
102 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
ÚR EINU Í ANNAÐ
Gallerí Thors var nýlega opnað
við Linnetsstíg 2 í Hafnarfirði.
Níu listakonur standa að
rekstri þess. Halla Bogadóttir
og Fríða Jónsdóttir eru gull-
smiðir. Helena Sólbrá er text-
ílhönnuður. Lilja Bragadóttir,
Þóra Benediktsdóttir og Þóra
Einarsdóttir eru myndlistarkonur.
María Ólafsdóttir er myndlistar-
og leirlistakona og Sólveig
Hróðmarsdóttir einbeitir sér
að skúlptúr/mósaik. Ingibjörg
Klemenzdóttir leggur áherslu á
leir- og glerlist.
Svarti og hvíti liturinn ein-
kennir húsnæðið sem er einkar
nútímalegt og var það María
sem sá um hönnunina.
Hugmyndin er að gesta-
listamenn geti sýnt verk sín í
galleríinu og að í framtíðinni
lesi rithöfundar og skáld þar úr
verkum sínum og tónlistarmenn
komi fram.
Fleira verður í boði þar sem
lítið kaffihús er í galleríinu. Þess
má geta að bollarnir á kaffihús-
inu eru hönnun Ingibjargar. Þeir
eru svartir og hvítir.
„Leirinn er mjög með-
færilegur,“ segir Ingibjörg. „Það
er yndislegt að vinna með leir
og það er hægt að skapa svo
margt úr honum. Leirinn er lif-
andi efni. Ég tjái mig í gegnum
hann. Í sumum verkum mínum
endurspeglast tilfinningar mínar
gagnvart náttúrunni en þaðan fæ
ég margar hugmynda minna.“
Í galleríinu, þar sem listakon-
urnar níu selja verk sín, má sjá
tilfinningar hverrar og einnar end-
urspeglast í listaverkunum, hvort
sem um er að ræða gull, textíl,
striga og liti, leir eða gler.
List:
TILFINNINGARNAR OG LISTIN
„Leirinn er lifandi efni. Ég tjái mig í gegnum hann.“
Svarti og hvíti liturinn einkennir húsnæðið.
FV.07.06.indd 102 7.9.2006 13:01:17