Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 33
UM BÆKUR OG SKOÐANAFRELSI 127 rithöfunda verður æ ískyggilegri. Þeir komast skjótt að raun um, að sjálfsvirðingar sinnar vegna geta þeir ekki samið fyrir fimm miljónir lesenda eða enn fleiri, heldur verða þeir að beina máli sínu til miklu fáliðaðri sveitar. Með rithöfundum og ráðamönnum útvarps og kvikmynda hefur strax skorizt svo í odda, að hvorugur aðilinn vill eiga skipti við hinn. Og nú þegar „fínustu“ vikublöðin og tímaritin hafa úthýst þeim, fá þeir hvergi inni, nema þá hjá vönduðustu tímaritunum og þeim, sem gefin eru út í tilraunaskyni. En jafnvel þar mega þeir eiga von á, að þeim verði sett ýmiss konar skilyrði, sem ef til vill girða fyrir, að þeir fái verk sín birt. Meti rithöfundur einhvers hæfileika sína, á hann því einskis annars úrkosti en semja bækur. Með því móti og engu öðru fær hann notið raunverulegs og óskoraðs tjáningarfrelsis í Bandaríkjunum. Verði þetta hinzta athvarf bókmenntanna frá þeim tekið, geta bandarískir höfundar væiizt þess, að þeir líði gersamlega undir lok, rétt eins og vísundahjarðir vorar. En því fer betur, að hingað til hefur fáum útgefendum dottið í hug að skerða frelsi bóka. Að vísu er ekki loku fyrir það skotið, að þeir taki laglega saminn róm- antískan kynórareyfara, sem alþjóðarhylli á vísa, fram yfir stór- brotið harmsögulegt skáldverk, sem kann að seljast treglega. Vel má vera, að val þeirra sé ekki ávallt réttlátt, en samt sem áður standa þeir ekki í vegi fyrir góðum, alvarlegum og hreinskilnum bókmenntum. Þessa staðreynd gætu ritskrár flestallra útgefenda staðfest. Bandaríkjunum er þetta ómetanleg gæfa. Bækur hafa löngum verið helzti vettvangur frjálsrar hugsunar. Og almenn kynning frjálsrar hugsunar gerist æ nauðsynlegri. Mannkynið er hungrað um þessar mundir. Það þráir ekki einungis brauð. Bók, sem gefin er út í Ameríku í dag, lesa Indverjar, Kínverjar, íslendingar, Frakkar og Þjóðverjar eftir fáar vikur. Drengskapartilfinning manna er einnig söm og jöfn, hvar sem er á hnettinum. Nirfill í Connecticut er alveg eins auvirðilegur og nirfill í París, Lundúnum eða Róma- borg. Morðingi í Illinois er alveg eins viðbjóðslegt dýr og mexí- kanskur morðingi, kínverskur eða spánskur. Bókmenntir eru ekki fjötraðar við nein landamæri né heldur neinar stéttir. Allir geta skilið þær. Og þeim er hægt að snúa á fjölmörg tungumál.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.