Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 38
132 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Auk þess er nú sem stendur ekki útlit á öðru en að íslenzk bóka- útgáfa muni verða að draga saman seglin allverulega vegna erf- iðleika á því að fá gjaldeyri til pappírskaupa, svo að allt ber að sama brunni. Að vísu hefur margt verið gefið út á íslenzku upp á síðkastið sem betur væri óprentað, en vafasamt er að bókaútgef- endur láti einmitt ruslið hverfa fyrst, þegar farið verður að spara pappírinn. Og gjaldeyrisyfirvöldin láta sig það bersýnilega einu gilda, því að ekki hefur borið á því að takmarkaður hafi verið pappír t. d. við þau blöð og tímarit sem engum heilvita manni getur dottið í hug að telja til bókmennta, þó að önnur sem reyna að halda uppi viðleitni í þá átt hafi orðið að bíða mánuðum saman eftir pappírsleyfum. Tökum annað dæmi. Alþingi veitir fé til námsstyrkja erlendis og felur menntamálaráði að úthluta þeim. Menntamálaráð hefur alla aðstöðu til að afla sér allrar nauðsynlegrar vitneskju urn um> sækjendur, þarfir þeirra og gagnsemi þess náms sem þeir ætla að stunda, og veitir styrki í samræmi við þessar athuganir. Nú skyldi maður ætla að svo væri um hnútana búið að þarna væri ekki verið að sóa fé til óþarfa, þessu mætti treysta. En gjaldeyrisyfirvöldin eru á annarri skoðun. Styrkþegar, samþykktir af menntamálaráði, eiga alla framtíð sína undir gjaldeyrisyfirvöldunum; blátt bann er lagt við því að þeir fari utan nema með samþykki þessara alvitru nefnda, sem virðast bera meira skynbragð á þessa hluti heldur en þeir full- trúar sem Alþingi hefur trúað fyrir að ráðstafa styrkjum sínum. Afleiðingin er takmarkanir á tölu námsmanna, niðurskurður á yfirfærslum til þeirra, naumur kostur hjá þeim sem út komast, og í aðra hönd einhver hungurlúsarsparnaður á gjaldeyri sem hvergi gætir í þjóðarbúskapnum, en getur kostað landið duglega sérfræð- inga í mikilsverðum starfsgreinum. Eg veit ekki hve slæmt ástand- ið er orðið meðal íslenzkra námsmanna erlendis, en mér er vel kunnugt um hvernig það var á kreppuárunum fyrir stríðið, þegar íslenzkir stúdentar í Kaupmannahöfn hefðu soltið heilu hungri, ef einstakir menn, erlendir og innlendir, hefðu ekki hlaupið undir bagga. Slíkt neyðarástand er íslenzku þjóðinni til svo mikillar skammar að það rná aldrei koma fyrir aftur. Og það tjón sem ungir námsmenn geta beðið af slíkum aðbúnaði verður trautt metið, og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.