Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Síða 49
HVAÐ ER AMERÍSK ÞJÓÐHOLLUSTA?
143
Það var álitið, að frú Lewis væri að ráðast á ameríkanismann
með því einu að tala um Rússland. Það sýnir bezt, hve ástandið er
alvarlegt, að í sömu viku áleit þingið nauðsynlegt að fresta um-
ræðum um hin þýðingarmestu mál til þess að snúast gegn árásum
á ameríkanismann úr nýrri átt. í þetta sinn voru það listamennirnir,
sem voru að grafa undan ameríska skipulaginu, og þingmennirnir
eyddu nokkrum tímum í það að láta ganga á milli sín eftirmyndir
af málverkum, er utanríkisráðuneytið hafði sent út um heim sem
þátt í þeirri starfsemi sinni að auglýsa ameríska menningu. Óþarft
er að eyða mörgum orðum að þeirri frábæru kýmni, sem kom
fram í ummælum þingmannanna um nútímalist. Þreyttir stjórn-
málamenn verða eitthvað að gera sér til gamans. En það er vert að
geta þeirrar megingagnrýni, sem kom fram á þessu vesalings mál-
verkasafni. í stuttu máli sagt kom það í ljós, að annmarkar þess-
ara málverka voru þeir, að þau voru óamerísk. „Enginn Ameríku-
maður hefði getað málað þessar vitfirringslegu myndir,“ sagði
herra Rankin. Kannske hafði hann rétt fyrir sér. Til þess að sanna,
að af þeim fjörutíu og fimm listamönnum, sem þarna áttu myndir,
„væru að minnsta kosti tuttugu ákveðnir Rooseveltsmenn og að meira
eða minna leyti kommúnistar“, var stuðzt við hinar nákvæmu skrár
Rannsóknarnefndarinnar á óamerískri starfsemi. Staðreyndirnar
þessu til sönnunnar voru taldar fram um hvern og einn af þessum
tuttugu skaðræðismönnum. Við getum látið okkur nægja að geta
þess, sem einum þeirra, Ben-Zion, var borið á brýn. Hvað hafði
hann unnið til saka? „Ben-Zion var einn þeirra, sem undirritaði
bréf, er Bandalag amerískra listamanna sendi Roosevelt, þar sem
mælt var eindregið með hjálp til Ráðstjórnarríkjanna og Bretlands,
eftir að Hitler hafði ráðizt á Rússland“. I stuttu máli sagt, hann var
fylgismaður Churchills og Roosevelts.
Sama dag og herra Dirksen ákærði opinberlega skólayfirvöldin
í Washington fyrir að leyfa stúdentum að hlusta á fróðleik um
Rússland. („í Rússlandi njóta öll þjóðerni jafnréttis. Þar eru allir
þjóðflokkar jafn réttháir. Enginn segir, þú ert Negri, þú ert Gyð-
ingur“), reis upp Williams, þingmaður frá Mississippi, til þess að
ráðast á tímaritið „Survey-Graphic“, og til þess að auka enn frekar
skilning okkar á ameríkanismanum. Hann sagði að i „Survey-