Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 92

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 92
186 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Dóttir herra Hoshijima, barnafræðara trúboðsins, kom hlaup- andi til föður Kleinsorges og sagði að móðir sín og systir væru grafnar undir rústunum af húsi sínu, en það var bak við trúboðs- stöð jesúítanna, og í sömu svifum tóku prestarnir eftir því að hús kennslukonu barnaheimilisins neðan við trúboðsstöðina var hrunið ofan ó hana. Meðan faðir LaSalle og frú Murata, forstöðukona trúboðsins, grófu kennslukonuna upp, gekk faðir Kleinsorge að hinu hrunda húsi barnafræðarans og fór að róta til í rústunum. Ekkert hljóð heyrðist neðan úr þeim; hann var viss um að Hos- hijima-konurnar væru dánar. Að lokum sá hann höfuðið á frú Hoshijima undir því sem eitt sinn hafði verið hornið á eldhúsinu. Hann hélt hún væri dáin og fór að draga hana út á hárinu, en allt í einu hrópaði hún: „Itai! Itai! Það er sárt! Það er sárt!“ Hann gróf dálítið ennþá og lyfti henni út. Honum tókst einnig að finna dóttur hennar í múrsteinshaugnum og losa hana. Hvorug var illa særð. Kviknað hafði í almenningsbaðhúsi við hliðina á trúboðsbygg- ingunni, en þar sem vindurinn var suðlægur héldu prestarnir að hús þeirra væri óhult. Samt fór faðir Kleinsorge inn í varúðar- skyni til að ná í ýmislegt sem hann vildi ekki glata. í herbergi hans var óhugnanleg og furðuleg ringulreið. Meðalakassi hékk ósnort- inn ó krók á veggnum, en fötin hans sem höfðu hangið á öðrum krókum rétt hjá voru gersamlega horfin. Skrifborðið hans var í flísum um allt gólfið, en auvirðileg pappataska sem hann hafði falið undir borðinu stóð í dyrunum þar sem honum gat ekki sézt yfir hana, með handarhaldið upp, án nokkurrar skrámu. Faðir Klein sorge leit síðar á þetta sem æðri forsjón, þar sem í töskunni var bænabókin hans, reikningabókin fyrir allt trúboðsumdæmið og veruleg upphæð í seðlum sem trúboðsstofnunin átti og hann bar ábyrgð á. Hann hljóp út úr húsinu og kom töskunni fyrir í loft- varnarbyrgi trúboðsins. Um sama leyti komu þeir aftur faðir Cieslik og faðir Schiffer, sem enn var drifinn blóði, og sögðu að hús dr. Kanda væri hrunið og að þeir kæmust ekki fyrir eldi út úr eyðileggingarsvæðinu, sem þeir héldu að væri aðeins í næsta nágrenninu, að einkaspitala dr. Fujiis á bakka Kyo-árinnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.