Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 97

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 97
HIROSHIMA 191 breytt um átt og var nú á norðan; það væri tími til kominn að fara. í sama bili benti kennslukona barnaheimilisins prestunum á herra Fukai, skrifara trúboðsumdæmisins, sem stóð við glugga sinn á annarri hæð trúboðshússins, horfði í áttina að sprenging- unni og grét. Faðir Cieslik hélt að stigarnir væru ónothæfir og hljóp aftur fyrir húsið til að leita að stiga. Þar heyrði hann fólk hrópa á hjálp undan föllnu þaki. Hann bað fólk sem hljóp fram hjá honum eftir götunni að hjálpa sér að lyfta þakinu, en enginn skeytti því neinu, og hann varð að fela hina innilokuðu dauðanum. Faðir Kleinsorge hljóp inn í trúboðshúsið og klöngraðist upp stig- ana, sem voru skældir og fullir af gipsi og spýtnabraki, og kallaði á herra Fukai úr dyrunum á herbergi hans. Herra Fukai, mjög stuttur maður um fimmtugt, sneri sér hægt við með einkennilegum svip og sagði: „Látið þér mig vera.“ Faðir Kleinsorge fór inn í herbergið og tók í hálsmálið á herra Fukai og sagði: „Komið þér með mér, annars farizt þér.“ Herra Fukai sagði: „Lofið þér mér að deyja í friði.“ Faðir Kleinsorge fór að draga og ýta herra Fukai út úr herberg- inu. Þá kom guðfræðineminn upp og tók um fæturna á herra Fukai, og faðir Kleinsorge tók um axlirnar á honum, og í sam- einingu báru þeir hann niður stigann og út. „Ég get ekki gengið!“ hrópaði herra Fukai. „Látið þið mig í friði! “ Faðir Kleinsorge náði í pappatöskuna sína með peningunum og tók herra Fukai á bak sér, og hópurinn lagði af stað til Austursvæðisins, en þar var „öryggissvæði“ bæjarhlutans. Þegar þeir fóru út um hliðið var herra Fukai orðinn alveg eins og barn, barði á axlirnar á föður Kleinsorge og sagði: „Ég vil ekki fara. Ég vil ekki fara.“ Faðir Kleinsorge sneri sér að föður LaSalle og sagði út í hött: „Við höfum misst allar eigur okkar en ekki kýmnigáfuna.“ Gatan var full af húsahlutum, sem höfðu stjakazt út á hana, og föllnum símastaurum og vírum. Ur öðru og þriðja hverju liúsi komu raddir fólks sem var grafið og yfirgefið og hrópaði í sífellu með formlegri kurteisi: „Tasukete kure! Viljið þið gera svo vel að hjálpa okkur!“ Um ýmis húsin vissu prestarnir að vinir þeirra höfðu búið þar, en vegna eldsins var of seint að veita þeim hjálp.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.