Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 102

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 102
92 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Það má furðulegt heita, að annar eins hafsjór af sögum og bröndurum skuli hafa rúmazt í einum kolli. Séra Árna verður allt að frásagnarefni. Og þá skipt- ir hitt minnu, þótt lidnn hafi ekki gert víðreist um dagana, þótt líf hans hafi verið fremur fábrotið og snautt að stór- viðburðum á ytra borði. Hann hefur samt nægilegt frásagnarefni til þess að fylla sex þykk bindi. Það væri vonlaust verk að ætla sér að gefa nokkra viðhlitandi hugmynd um þetta mikla rit, nema þá í miklu lengra máli en hér er kostur á. Það er liið und- arlegasta sajnsafn af alls konar sögum og frásögnum, hversdagslegum og furðu- legum, sennilegum og lygilegum, alvar- legum og skoplegum. Frásagnir úr dag- legu lífi og starfi, sögur af venjulegu fólki og óvenjulegu, dagfari þess og skapgerð, dýrasögur, veikindasögur, sög- ur af undralækningum, sögur um skyggna menn, sögur um drauma, sýnir og vitranir, sögur um mátt bænarinnar, helgisögur, kraftaverkasögur, huldu- fólkssögur, draugasögur og skrímsla, og mætti þannig lengi telja. Og ekki má gleyma því, að þarna eru heilir þættir, sumir langir, um þjóðkunna menn eða sérkennilega, er sögumaður hefur kynnzt. Og það bregzt ekki, að þessir þættir varpi skýru ljósi á persónurnar, og sumir hverjir auk þess alveg nýju ljósi. Meðal þjóðkunnra manna eru Jón Þorkelsson rektor, Gestur Pálsson, Ein- ar Benediktsson, Lárus H. Bjarnason, Þorleifur í Bjarnarhöfn, Símon Dala- skáld og frú Þuríður Kúld. Af sérkenni- legum mönnum Signý Sigmundsdóttir, Kristín Sigurðardóttir í Skógarnesi, Guðmundur Guðmundsson læknir, Guð- mundur dúlluri og Benedikt í Krossholti. Allir eru þættir þessir fróðlegir og flestir skemmtilegir með afbrigðum. Og svo er um verkið allt. Betri skemmtilest- ur getur maður varla kosið sér. En af öllum þeim urmul persóna, sem bregður fyrir á sviðinu, langflestar meitlaðar og bráðlifandi, er það þó ein, sem dregur að sér mesta athyglina. Það er sögumað- urinn sjálfur — þessi sérstæði persónu- leiki, margslunginn og einóður í senn, alvörumaður og húmoristi af guðs náð, leiftrandi af snilliyrðum, en bamalegur í aðra röndina, drjúgur nokkuð af sjálf- um sér og þó lítillátur við alla. En á hann duga engin lýsingarorð. Til þess að kynnast honum þarf að lesa þessa sögu hans spjaldanna milli. Þó að Árni prófastur væri í tölu hinna lærðu manna og hafi vafalaust unað sér vel með höfðingjum, er svo bar undir, var hann með vissum hætti alþýðunnar maður. Hann er auðvitað trúaður, eins og samir presti hinnar íslenzku þjóð- kirkju. En trú sína hefur hann ekki öðl- azt fyrir guðfræðinámið, heldur aðallega af viðkynningu sinni við fjósakonu í Reykjavík og vanskapaðan niðursetning vestur á Snæfellsnesi. Yfirleitt andar köldu frá honum til lærðu mannanna. „Skelfing eru þeir vitlausir, þessir kon- tórlallar." Við nýju guðfræðina, er hann svo kallar, er honum mjög í nöp. Um einn af máttarstólpum íslenzkrar kirkju segir hann, að sá gæti afkristnað heil sólkerfi, og myndi það ekki taka hann langan tíma. Virðingarleysi séra Árna fyrir vísindum nútímans á sér nálega engin takmörk, og situr hann sig sjaldan úr færi um að beina skeytum sínum að þeim. „Alla lögfræði, sem ég hef numið, lærði ég af hundi.“ Sálfræði og heim- speki síðari tíma eiga ekki upp á pall- borðið hjá honum. Hann lætur sig t. d. ekki muna um að sæma heimspekinginn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.