Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1951, Page 110
100 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hann einkum úr tveim áttum: írskum prestum og álfheimum. Lýsingar sög- unnar á samskiptum ísars við huldu- verur náttúrunnar eru býsna fagrar en ákaflega óraunsæjar, ef á að taka þær alvarlega, eins og höfundurinn virðist ætlast til. Eg leiði heimspekina hjá mér. Mér finnst hún hálf þunn og barnaleg og löngu úrelt, en máski hæfir hún þannig bezt hinu óraunverulega og verklausa lífi sögunnar. Máski er hún góð handa fólki, sem hefur ekkert annað að gera en rembast við að vera gott fólk án nokkurrar lífsbaráttu. Einnig eru það úreltar hugmyndir lífsþreytts yfirstéttarfólks í stórborgum, að lífið í sveitinni sé eintóm friðsæld við lauka- og vizkurækt, jafnvel á Ir- landi á 11. öld. Eins og áður getur, mun ísarr Dags- son eiga að verða höfundur Völuspár. Það, sem komið er af sögunni, mun aðeins vera fyrra eða fyrsta bindi. Ekki verður af því ráðið, hvernig honum tekst að yrkja það kvæði. En mikilli lífsreynslu má þessi sveimhugi bæta við hina írsku speki sína. Þó uggir mig mest, að hann verði orðinn of vel krist- inn og heilagur, en of fjarri heiðninni. Ég held, að það hafi verið misráðið af höfundi að láta söguna gerast eftir alda- mótin 1000. Þó eru kannski önnur mis- tök verri. Isarr Dagsson hefur kynnzt mörgum fögrum konum, ratað í ýmis ástarævintýri og yfirleitt lifað mjög lausbeizlaður. Ef höfundurinn léti hann ekki taka kristnina og heimspekina eins alvarlega og hann gerir, teldi eg ekki ómögulegt, að hann gæti skrifað sögu í líkingu við Decameron, ef honum entist aldur til. í þessu er einmitt megingalli sögunn- ar fólginn. Höfundur hefur tekið skakk- an pól í hæðina. Hann hefur ætlað að skrifa alvarlega sögu, en sagan hefur á sér flest einkenni rómantískrar gaman- sögu. Hún er einskonar sambland af rómantík fornsagnanna og íburðarmik- illi nútíma Hollywoodkvikmynd. Kvikmyndir nútímans eru einkum þrenns konar: a) Gamanmyndir, b) rómantískar dans- og söngvamyndir, c) raunsæismyndir. Allar geta þessar myndir verið góðar, séu þær vel gerðar. En sé þeim blandað saman, verður það til stórspillis. Algengt er að stórspilla rómantískum gamanmyndum með því að troða inn í þær alvarlegu efni, sem á þar ekki heima. Þetta hefur einnig hent höfund Þokunnar rauðu. Ef hann hefði sleppt hugmyndinni um Völuspá, svo og hinu írska heimspekiþrugli, en sett í þess stað létt gamanefni, hefði sagan orðið öll önnur og betri. Kristmann hef- ur svo frjótt ímyndunarafl og kann svo vel að segja sögu, að það getur verið unun að hverfa burt frá veruleikanum um sinn og fylgja honum um draum- heima eða skyggnast inn í dularheima mannlegra tilfinninga. Helgi J. Halldórsson. Elías Mar: Vögguvísa. Helgafell, Reykjavík 1950. Íslenzkir skáldsagnahöfundar til þessa dags hafa verið sveitamenn. Þó að þeir hafi dustað mosann úr skegginu og gerzt heimsborgarar, hefur Reykjavík verið sem bögglað roð fyrir brjósti þeirra. Þeir hafa ýmict skilið hana eins og sveitadrengir eða útlendingar, hún hef- ur aldrei runnið þeim í merg og blóð. Nú fyrst eru þeir höfundar að verða
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.