Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1963, Page 26

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1963, Page 26
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ing úr þessum tveim áttum héldu verkamenn áfram að beita skæru- hernaði gegn sérhverri tilraun iðn- fyrirtækjanna til þess að fækka verkamönnum, en starfsmenn sam- bandsins neyddu þá jafnharðan til að hverfa til vinnu aftur. Nýjar verk- smiðjur með nýjum sjálfvirkum vél- um tóku að rísa upp víðsvegar um landið. Verkamönnum í gömlu verk- smiðjunum var tvístrað og þeir flutt- ir í nýju verksmiðjurnar. Þannig var sú vélavinna, sem 1800 verkamenn höfðu leyst af hendi í gömlu Chrysl- er-Jefferson verksmiðjunni, unnin af 596 verkamönnum í nýju verksmiðj- unni í Trenton, Michigan, sem sér ekki einungis gömlu verksmiðjunni fyrir vélahlutum, heldur öllum öðr- um verksmiðjum fyrirtækisins. Hundruðum verkainanna var sagt upp, þegar framleiðslan óx, ekki ein- ungis vegna hinna nýju sjálfvirku véla, heldur einnig vegna þess að verkamönnum var þröngvað til að gæta fleiri hinna gömlu véla. Með því að fjölga stýritækjum í hinum sjálf- virku vélum og draga þannig úr eða koma í veg fyrir bilanir, var jafnvel hægt að komast af án viðgerðar- manna. Verkamennirnir hófu skæruverk- föll, héldu fundi í félögum sínum, samþykktu að neita eftirvinnu, allt í þeim tilgangi að reyna að stöðva þessa þróun. En sambandið hélt áfram að senda þá aftur til vinnu, og uppsagnirnar héldu áfram í hverri deild verksmiðjunnar á fætur ann- arri, náðu jafnvel til skrifstofufólks, tímatökumanna og kaupgreiðslu- manna. Þegar IBM bókhalds- og reiknivélar tóku að bola burt skrif- stofufólki, bættust tízkuklæddar stúlk- ur í raðir verkamanna á verkfalls- verðinum. Loks, eftir að 137 skæruverkföll höfðu staðið á einu ári hjá U.S. Rubber og 700 skæruverkföll á þrem árum hjá Chrysler, varð samkomulag um það milli sambandsins og atvinnu- rekenda, að allir verkamenn, sem tækju þátt í skæruverkföllum, skyldu fá áminningu í fyrsta skipti, en síðan vera reknir. Með þessu var endi bund- inn á skæruverkföllin. Og 1958 tók sambandið í raun og veru sína eigin gröf, þegar það var knúið til þess af atvinnurekendum að skipa verka- mönnum að halda áfram vinnu í fj óra mánuði án nokkurra samninga. Sam- tímis tóku atvinnurekendur upp nýj- an mælikvarða á vinnuafköst eftir eigin geðþótta, sem var bein ögrun við sambandið. Þegar samningurinn var loks undirritaður 1958, voru fáir verkamenn, sem gerðu sér ekki ljóst að atvinnurekendur voru nú einráðir um allt í verksmiðjunum. Tímatöku- menn og sérfræðingar í vinnuhagræð- ingu fóru snuðrandi um verksmiðj- urnar eins og blóðhundar, njósnuðu, tóku myndir, og gægðust yfir axlir verkamanna, en starfsmenn sam- 296

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.