Tímarit Máls og menningar - 01.12.1963, Page 28
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
sinnt. Undirskriftirnar voru naumast
þornaðar á samningunum og verka-
mennirnir höfðu ekki einu sinni stað-
fest þá, þegar atvinnurekendur voru
farnir að gera áætlanir um sex daga
vinnuviku, tíu stundir á dag. Það var
ekki aðeins að ekkert væri gerl til að
bæta vinnuskilyrðin, heldur höfðu
verksmiðjueigendur nú í höndum
þriggja ára samning, sem heimilaði
þeim að halda áfram að auka vinnu-
hraðann, sem stöðugt hefur verið að
vaxa síðan 1955, og einnig að beita
hótunum. Jafnvel hinum fáu fulltrú-
um, sem verkamenn áttu enn í Chrysl-
erverksmiðjunum, var fækkað. í
verksmiðjum American Motors hefur
verkamönnum verið bannað að þvo
sér í vinnutímanum. í uppgjöf sinni
gagnvart atvinnuleysinu, sem sam-
bandið er nú farið að líta á sem var-
anlegt ástand, hefur það snúið sér að
allsherjar áætlun um að þoka eins
mörgum verkamönnum og unnt er út
úr verksmiðjunum gegn bótagreiðsl-
um, eftirlaunum og auknum atvinnu-
leysisstyrkj um. Samtímis hefur það á
prjónunum áætlun um ágóðahlut og
ætlar þannig að innlima þá verka-
menn, sem eftir eru í verksmiðjunum
í sjálfar verksmiðjustjórnirnar. Þeg-
ar verkamenn hjá American Motors
létu skýrt í Ijós, að þeir kærðu sig
ekki um ágóðahlut, bjó sambands-
stjórnin til nýja skilgreiningu á lýð-
ræði: endurtekning atkvæðagreiðslu
þangað til verkamennirnir greiða at-
kvæði eins og sambandsstjórnin vill.
Þegar hvert verkalýðsfélagið á fætur
öðru í verksmiðjum Chryslers, með
verkalýðsfélagið í Pittsburgh-verk-
smiðjunni í broddi fylkingar, neitaði
að hverfa til vinnu fyrr en staðbund-
in kvörtunarefni þeirra hefðu verið
tekin til greina, gerði allsherjarnefnd-
in (International Board) sér lítið fyr-
ir og kvaddi alla liina óhlýðnu verka-
lýðsforingja til Detroit, þar sem þeir
voru með aðstoð atvinnurekenda
reknir í hjörðina.
UAW er aðeins eitt samband innan
CIO. En það var talið framsækn-
ara en önnur sambönd og til fyrir-
myndar innan verkalýðshreyfingar-
innar á fjórða tug aldarinnar. Ef svo
er um UAW, er ekki erfitt að gera sér
í hugarlund ástandið í hinum sam-
böndum CIO, sem linari voru í bar-
áttunni og félagslega skemmra komin
en UAW.
En nú er svo komið, eftir 25 ár, að
UAW hefur afhent verksmiðjustjórn-
unum aftur allan þann íhlutunarrétt
um framleiðsluna, sem áunnizt hafði
á fjórða tug aldarinnar og í stríðinu.
Nú leysa verkamennirnir af hendi
sömu vinnu á átta tímum og þeir
leystu áður af hendi á tólf. Klukkan
hálfsjö á morgnana, hálfri stundu áð-
ur en dagvaktin byrjar, má sjá verka-
mennina við undirbúningsstörf, svo
að þeir geti skilað fullum afköstum
þann tíma, sem þeir eru launaðir. Þeir
eru hræddir við að fara á klósett, fá
298