Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 80

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Page 80
Tímarit Máls og menningar né minna en byltingar í eðlisfræði, sem hafa kennt mönnum rækilega að forðast ofmetnað, enda hafa eðlisfræðingar æ síðan haft yfrið nóg af veiga- miklum óleystum gátum að glíma við. Snúum okkur nú að einni slíkri byltingu, sem virðist hafa fengið Bloch og andvígismönnum hans nokkurrar áhyggju. Hér á ég við svonefnda sleammta- frœði sem mótaðist á tímabilinu frá aldamótum fram á þriðja tug aldar- innar. Ymsar niðurstöður hennar eru býsna framandi og torskildar og hafa valdið heimspekingum miklum heilabrotum, eins og grein Blochs ber vitni um, en því miður fer oft illa þegar menn skilja illa en vilja endilega túlka. Ein slík niðurstaða skammtafræðinnar, sem hefur hlotið rækilega staðfest- ingu í tilraunum, er sú að smáar efnisagnir (t. d. öreindir) hegða sér við vissar aðstæður eins og öldur eða ölduknippi. Á sama hátt er hegðun t. d. ljóss, sem var áður talið geislun eða öldur, stundum eins og um efnisagnir sé að ræða. Sumir andstæðingar Blochs virðast hafa túlkað þessi nýmæli svo að „gengið væri af efninu dauðu“, en slíkt er tilhæfulaust; t. a. m. hrófla þau ekki við hugmyndum okkar um stórsæja hluti (hluti sem sjást með ber- um augum) og hugtakið efnisögn stendur óhaggað í ýmsum tilvikum. Onnur niðurstaða skammtafræðinnar ætti að vera heimspekingum ekki síðra viðfangsefni en tvíeðli efnis og geislunar, en það eru þær breytingar á orsakalögmálinu sem skammtafræðin leiðir af sér. Um síðustu aldamót átti orsakahyggja eða nauðhyggja, eins og Guðmundur Finnbogason hefur kall- að hana (sbr. skýringar hér að framan), miklu fylgi að fagna meðal vísinda- manna. Samkvæmt henni má segja fyrir bæði um framtið og fortíð allra hluta, ef við þekkjum stöðu og hraða allra efnisagna á einhverri stundu með nægilegri nákvæmni. Þessi fullyrðing er ekki mikils virði nema unnt sé að mæla stað og hraða með eins mikilli nákvæmni og vera skal, enda gengu nauðhyggjumenn út frá því sem vísu. I skammtafræði er hins vegar sýnt fram á að því eru takmörk sett, hve nákvæmlega við getum mælt stað og lxraða agnar samtímis; ef við viljum ákvarða staðinn fullkomlega, verðum við að fórna allri vitneskju um hraðann, og öfugt. I tengslum við þetta kem- ur svo til önnur breyting: í stað þess að segja nákvæmlega fyrir um óorðna liluti í heimi öreindanna getum við skv. skammtafræðinni aðeins sagt til um líkur á einstökum atburðum. Gott dæmi um þetta er geislavirkt atóm: við vitum að það sundrast fyrr eða síðar og getum sagt fyrir um líkindin til þess að sundrunin gerist á einhverju tilteknu tímabili, en ekki nákvæmlega hvenær hún verður. Ég legg áherslu á að hér er ekki um að ræða tæknilega erfið- leika, sem verði yfirstignir með fullkomnari mælitækjum, heldur undirstöðu- 70
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.