Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 35
Tilraunamenntaskóli í Urbana
mönnum annarra menntaskóla. En stelpan lét sig ekki og við gáfum
leyfið.
Nú veit ég meira um ED II, ég hef farið í skólann og talað við
kennarana, og dóttur minni líkar vel. Hún hefur lagt harðar að sér en
nokkru sinni fyrr. Eg held að ED II henti henni prýðilega, en ekki er
þar með sagt að hann henti öllum krökkum.
Nemendur ED II tóku þátt í samræmdu hæfnisprófi í skólaumdæminu
árin 1974 og 1975 og stóðu sig samkvæmt eðlilegu meðallagi. Þó var til þess
tekið seinna árið að nemendur sem þá höfðu verið í ED II í tvö ár stóðu sig
miklu betur en meðallagið sagði til um. Svipað hlutfall reyndist fara í
háskóla úr ED II og úr venjulegum menntaskólum og nemendur þaðan
stóðu sig sambærilega, en þeim gekk að ýmsu leyti betur en öðrum
stúdentum að laga sig að háskólastarfi, líklega vegna þess hvað þeir voru
vanir að vinna sjálfstætt.
En þrátt fyrir þessa fallegu lýsingu fækkaði nemendum ED II: Flestir
voru þeir 1976—8, 70—80 manns, en talan hrapaði í 40—45 síðasta skólaárið.
Hvernig ætli hafi staðið á því? Ein skýring er eflaust sú að námið hafi verið
erfitt í ED II, krafist sjálfsaga og einbeitni umfram annað framhaldsskóla-
nám. Onnur skýring gæti verið sú að nægilegt hafi verið að eiga völina á
öðruvísi skóla, það hafi ekki orðið nauðsynlegt að notfæra sér hana þegar
fram í sótti. Kannski varð hræðslan meiri við hvers kyns tilraunir á þessu
námsstigi þegar nær dró 1980 og aðstæður í efnahags- og atvinnumálum
höfðu breyst til hins verra.
Margir urðu líka til að tala um ED II sem „tossaskóla“, og einkum var
starfsmönnum annarra menntaskóla illa við hann. En þeim mörgu foreldr-
um, kennurum og öðrum sem kynntust starfi ED II af eigin raun lá afar gott
orð til skólans. Utanaðkomandi skólamatsmaður segir í skýrslu frá 1977:
ED II er raunveruleg nýjung í skólahaldi sem hverfur á afdrifaríkan
hátt frá venjulegum kennsluaðferðum. Námstilhögunin er reist á
skýrum uppeldisheimspekilegum kenningum sem setja mark sitt á allt
starfið í skólanum. Stefnt er að einstaklingsnámi þannig að hver
nemandi býr sér til námsskrá í samræmi við eigin getu og áhuga.
Nemendurnir ákveða ekki eingöngu hvað þeir vilja læra heldur
hvernig þeir vilja læra, sem skiptir e. t. v. meira máli. Þeir geta skráð
sig í venjulega bekki, þeir geta stundað eigin athuganir eða unnið í
hóp að ákveðnu verkefni. Margir tilraunaskólar eiga í vandræðum
með að koma sér upp námsskrá sem brýtur raunverulega í bága við
hefðbundna námstilhögun, en þetta hefur ED II tekist.
Síðla vors 1979 var samt ákveðið að skera ED II niður. Einhvers staðar
385
L