Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 36
varð að beita hnífnum til að forða bænum frá fjárhagshruni, sögðu yfirvöld,
og ED II lá vel við niðurskurði. Nemendum fór fækkandi, og þó að
fjárveiting færi eftir fjölda þeirra var auðvelt að sýna fram á að ódýrara væri
að taka þá inn í aðra og stærri skóla.
Tilraunin stendur þó fyrir sínu og er verð umhugsunar og jafnvel
eftirbreytni.
Heimild
Olafur J. Proppé: Education II, an Alternative High School Program in Urbana: A
Case Study. Circe. University of Illinois. Nov. 1979.
Ingvar Sigurgeirsson
Það er líka ýmislegt að gerast hér heima
— þegar vel viðrar
Það er líka ýmislegt að gerast hér heima var yfirskriftin á þessu greinarkorni
í drögum að efnisyfirliti frá ritstjóranum. Frómt frá sagt þá finnst mér á
stundum að það ráðist af veðri hvort þessi staðhæfing verður í huganum að
viturlegri ályktun eða heimskulegri firru. Víst er að þegar veður öll eru
válynd og dimm þá verður sú hugsun öðrum yfirsterkari að skólastarf geti
alls ekki breyst. Þær eru óneitanlega sterkar hefðirnar sem njörva það niður.
Stundum verður þessi tilfinning svo þrúgandi að það er eins og Þrándur í
Götu og ljónin á veginum hafi tekið höndum saman um að loka öllum
leiðum til framfara.
Eg hygg að það verði að viðurkenna að í mörgum skólastofum sé allt starf
með svipuðum hætti og það var þegar lesandinn var sjálfur í barnaskóla, og
þá gildir einu hvort hann er ungur eða gamall!
Hver kannast ekki við að hafa heyrt því haldið fram að búið sé að
umturna öllu í skólanum. Oft er t. d. fullyrt að hér á landi sé hamast við að
apa alls konar hugmyndir í skóla- og uppeldismálum, einkum eftir frændum
okkar Svíum, og er jafnan haft á orði að þegar mörlandinn sé loksins búinn
að tileinka sér nýmælin þá séu sænskir fyrir löngu komnir að þeirri
niðurstöðu að betur hefði verið setið heima en farið af stað.
Því miður er langur vegur frá því að hægt sé að segja að róttækar
breytingar hafi orðið á skólastarfi hér á landi. Eg er þó þeirrar skoðunar að
annað gildi um skóla&er/ið, þ. e. hvernig það er byggt upp á pappírum, í
386