Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 49
 Krafa um afnám skóla — Abrar menntaleiðir hugsun? Ég læt lesandann um að dæma — en held nú áfram með söguna í þeirri von að einhver hafi áhuga á að rekja hana lengra. Gagnrýni úr fleiri áttum Paul Goodman og þeim félagsfræðingum, sem hófu hvassa skólagagnrýni í tengslum við athuganir sínar á þróun þjóðfélagsins fyrir rúmum aldarfjórð- ungi, bættist fljótlega liðsauki úr ýmsum áttum. Þar voru á ferðinni sálfræðingar eins og Carl Rogers sem í anda mannúðarsálfræðinnar færði rök fyrir því að nemendur ættu að fá meira frjálsræði en tíðkaðist í hefðbundnu skólastarfi og leita þroska eftir eigin leiðum — og Jerome Bruner sem beindi í upphafi hins merka ferils síns athyglinni að æskilegu námsefni og betri kennsluaðferðum en tók afstöðu sína til endurskoðunar og athugaði viðfangsefnið í víðara samhengi í Toward a Theory of Instruc- tion frá 1966 og þó enn frekar í greinasafninu Relevance of Education frá 1971. Um það tímabil sem greinarnar spanna, þ. e. 1964 — 1970, segir Bruner í formála bókarinnar: „I uppreisnar- og hugsjónaanda þessa tímabils má greina kröfuna um hið „eðlilega“, hið „frjálslega“ og nám sem tengist vitund einstaklingsins og beinni reynslu hans af viðfangsefninu. Vantrú á hefð- bundnum leiðum hefur vakið spurningar um hvort skólar sem slíkir séu ekki hluti af vandamáli — fremur en leið til að leysa vandamál menntun- arinnar." Flestir þeir höfundar leikir og lærðir sem á þessum árum geystust fram á ritvöllinn í Bandaríkjunum og munduðu stílvopn sín gegn skólanum eru lítt þekktir í Evrópu. Oðru máli gegnir um þá kennara sem slógust í hópinn: Jonathan Kozol, Herbert Kohl og síðast en ekki síst John Holt. Framlag Kozol til skólagagnrýninnar á þessum árum var miskunnarlaus greining á því hvað gerist í skóla í fátækrahverfi. Hún birtist í verðlaunabók sem ber hið dramatíska heiti Death at an Early Age (1967). Kohl skrifaði á árunum 1967—70 þrjú snörp og lífleg ádeilurit um stirðnað og vélrænt skólakerfi og lagði sig jafnframt fram um að leiðbeina kennurum um hvernig hægt væri að brjóta af sér klafa þess og breyta starfsháttum sínum skref fyrir skref. John Holt verður að segja frá í lengra máli. Gagnrýni byggð á kennarareynslu: John Holt Fyrstu hugmyndir John Holt mótast af reynslu hans sem kennara, einkum þrotlausum athugunum hans á því sem hann sér gerast í kennslustundum sínum og annarra — athugunum á því hvernig börn læra innan skóla og utan. Hann verður fljótlega mjög gagnrýninn á skóla og þá starfshætti sem tíðkast í þeim. Formáli fyrstu bókarinnar sem hann samdi og byggði á þessum athugunum, How Children Fail (1962), hefst með bitrum orðum: 399
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.