Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Qupperneq 52

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Qupperneq 52
Tímarit Máls og menningar Annað sem mér finnst gefa gagnrýni John Holt slagkraft er áhugi hans á þjóðfélagsmálum og hvernig hann tengir hann skoðunum sínum á skólum og kröfum sínum um menntun. “Education for the Future” nefnist ein greinin í áðurnefndri bók. Þar ræðir hann þær kröfur sem hann vill gera til skólans í baráttu fyrir friði, jafnrétti, frelsi og virðingu fyrir verkkunnáttu, skapandi starfi og vel unnu verki yfirleitt. Þau skrif minna um margt á Paul Goodman. Enn er John Holt þó ekki búinn að gefa skólann upp á bátinn og setur fram í þessari bók um hinn „seinfæra“ skóla (The Underachieving School) ýmsar hugmyndir um hvernig hægt sé að bæta hann — eða gera hann þolanlegri. Auk þess sem áður var minnst á um aukið frelsi nemenda til að velja sér viðfangsefni vill hann afnema fyrirmæli um ákveðið námsefni, próf og einkunnir, skyldumætingar, einkarétt kennara á að kenna í skólum og að próf úr skóla veiti réttindi til að mega vinna ákveðin störf. Áhyggjufullum kennurum og foreldrum sem spyrja hvort slíkt og þvílíkt geti ekki leitt til þess að börnin læri ekki eitthvað sem þarf nauðsynlega að kunna í lífinu svarar John Holt að bragði: „Hafið engar áhyggjur; ef þau þurfa raunveru- lega að kunna það í lífinu þá munu þau læra það hvort sem er. . . . Rétti tíminn til að læra eitthvað er þegar maður þarf á því að halda.“ Af því sem hér hefur verið rakið má væntanlega ljóst vera að við lok sjöunda áratugarins er hugur John Holt til þess hvers vænta megi af skólum og skólagöngu orðinn býsna blendinn. Það er eins og ekki vanti nema herslumuninn til að hann kunni að gefa upp alla von um þá. E. t. v. hafa kynni hans af Ivan Illich ráðið mestu um hve þess var skammt að bíða að svo færi. Skólinn á ekki rétt á sér: Ivan Illich Ur hvers konar umhverfi sprettur svo maðurinn sem tekur af skarið og færir fram þungvæg rök fyrir afnámi skóla og nauðsyn þess að leita nýrra, mannúðlegri, gagnlegri og ódýrari menntunarleiða? Hvert sækir hann vit sitt, reynslu og ástríðu? Hér á undan hef ég reynt að varpa nokkru ljósi á þann akur sem búið var að sá frækornum efans í. Það var komin uppskeru- tíð. Eins og jafnan þegar nýjar hugmyndir hasla sér völl er hæpið að eigna þær einni persónu. Hugmyndir manna fæðast í gagnkvæmum samskiptum eins og nýtt líf í ríki náttúrunnar. I inngangi bókarinnar Deschooling Society segir Illich frá samskiptum sínum og samræðum við fjölda manna, þ. á m. Paul Goodman, John Holt, Peter Berger, Paulo Freire og Everett Reimer. Ivan Illich fæddist í Austurríki 1926 en nam guðfræði, heimspeki og sögu í háskólum á Italíu og í Þýskalandi. Eftir að hann fluttist til Bandaríkjanna 1951 starfaði hann sem prestur hjá fátækum söfnuði í New York og síðan sem konrektor við kaþólskan háskóla í Puerto Rico. Eftir það fer athygli 402
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.