Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Qupperneq 10

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Qupperneq 10
Tímarit Máls og menningar listarmenn hafa sjaldnast talið það frágangssök að glettast við fölskva- lausustu listunnendur, og ekki hafa þeir látið sitt eftir liggja við að auka á óreiðuna. Þeir eru komnir yfir í bókagerð. En þó að skáldin fái sem áður sinn fasta dagskammt af spaklegum umsögnum, þá hefur myndlistarmönn- unum verið næsta lítið sinnt af þeim sem að jafnaði hafa atvinnu af að lesa bækur, og það svo að bækur myndlistarmanna hafa jafnvel alveg farið fram hjá þeim. En þar er kannski ekki endilega við þá sjálfa að sakast, því að bækur myndlistarmanna eru einatt torlæsilegar og það af þeirri veigamiklu ástæðu að í þeim er ósjaldan ekkert letur og ekkert þar að lesa. Hvernig eiga þá lestrarhestarnir að snúa sér til þess að komast til botns í verkum bóka- ormanna ólæsu? Hvernig eiga þeir grandalausir við sjónhverfingum að rýna í óletraðar síðurnar sér til skilnings og yndisauka? Hvað er eiginlega á seyði? Skáldið skrifar myndverk, myndlistarmaðurinn býr til bækur? Til þess að átta okkur ögn á þessu öllu saman skulum við fyrst líta á nokkrar hræringar í listum erlendis og reyna hvort okkur verður þar nokkuð ágengt í því að koma einhverju viti í þennan óskapnað. Síðan skal vikið að frumkvöðlum bókagerðar meðal íslenskra myndlistarmanna á árunum 1965—1975 og að lokum fjallað um helstu einkennin á bókalist yngri listamanna. I Þá er þar til að taka að bækur og myndlist hafa átt lengri samleið en menn kann ef til vill að reka minni til í fyrstu. En jafnskjótt og á þetta er bent má sjá það í hendi sér. Nægir að nefna bókakápur til þess að komast á rek- spölinn. Auk þess voru bækur áður fyrr ekki metnar eingöngu eftir því hversu lygilegar skröksögur þær höfðu að geyma, heldur einnig eftir því hvernig þær litu út, hvernig þær voru skreyttar, lýstar eða búnar, og er nærtækt að vísa hér til íslenskra skinnbóka sem nú eru út gefnar með viðhöfn og þykja dýrgripir. Rannsókn handritalýsinga er orðin sérgrein í listasögunni og jafnvel þeir sem láta sér nægja að fást við stafkrókafræði eru ekki svo skyni skroppnir að þeim sé fyrirmunað að kunna að meta fallega rithönd eða vel dreginn upphafsstaf. Prentaðar bækur frá fyrri öldum eru í ýmsum atriðum ekki fjarskyldar þrykktækni myndlistarmanna. Auk þess eru þær margar hverjar skreyttar prentmyndum og titilsíður þeirra hafa ekki heldur farið varhluta þar af. Má hér nefna Guðbrandsbiblíu sem dæmi. En það er þó ekki fyrr en á 19. öld að menn taka að velta fyrir sér gerð og hlutverki bókarinnar í því skyni að taka bókarformið inn í hugmyndina að verkinu. Er þar einkum að nefna franska skáldið Stéphane Mallarmé sem kunnastur er fyrir myrk og torræð ljóð og var einn af frumkvöðlum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.