Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Blaðsíða 62
Tímarit Máls og menningar
pilsum og kjólum), þuklaði lengi milli fótanna á henni, en tók svo í
lappirnar og ætlaði að svipta henni sundur. Þá sagði ég:
Nei, ég gef þér orð mitt upp á það að ekkert er falið í henni.
Móðurinn rann af manninum og hann hætti við. Hann tók í hönd
mér sem ég hafði rétt fram, og mig furðaði að enn skyldu vera í gildi
heityrði og handsölur, á tímum hinna miklu vísindalegu rannsókna
þegar engu er trúað nema það komi fram á tækinu. Og það í lest sem
kom frá landi þar sem hafði verið gerð bylting og ók til lands með
falangistastjórn, full af alls konar lýð: gervibyltingarsinnum, njósnur-
um, eiturlyfjasölum, saklausum skólastúlkum, ráplýð með bakpoka
og öðrum lýð sem flykktist nú úr borgum Norður Evrópu suður til
Portúgals og síðan til Spánar. Norður Evrópa hafði að mestu losnað
við lausingjalýð sinn, sem hafði nú bundið vonir við byltinguna og
ók suður á skrjóðum.
Er þetta gjöf handa dóttur þinni? spurði vörðurinn.
Já, svaraði ég. Eg keypti hana af sölukerlingu á götunni.
Hann fór þá að handleika brúðuna á ný af auknum áhuga og hafði
sig í að fletta upp um hana, kyndugur á svip, og þrýsti þumalfingri
laust milli fóta hennar og strauk niður lærin í greipinni. Svo potaði
hann nokkrum sinnum í rassinn og greip um mitti hennar og skoðaði
brjóstin sem svipaði til útstæðra augna framan á bringunni. Nú fór
hann aftur milli fótanna og gerði sig líklegan til að færa hana úr
buxunum. Fólkið í klefanum fylgdist með af áhuga í laumi.
Andrúmsloftið var orðið ókyrrt en um leið leyndist ánægja yfir að
„verið væri að taka einn“. Þessi ókyrrð og næstum kvíði greip um sig
strax við Entrocamento, hvað biði farþeganna þegar komið væri yfir
landamærin, því það hlaut að vekja grunsemdir lögreglunnar að
Ljósalands hraðlesin var alltaf troðfull eftir byltinguna en ók annars
tóm daglega milli Madrid og Lissabon.
En kannski langaði vörðinn aðeins að sjá brúðuna berlæraða.
Meðan við brjótum heilann um það er best að lýsa klæðnaði brúð-
unnar.
Hún var í gulleitu pilsi með tveimur bandþræðingum að neðan, í
rauðum sokkum og gulum hosum með svörtum röndum. Blússan var
úr sama efni, sem ég held að heiti frotté. Blátt band var um mittið og
hálsinn. Mynd af Andrési Ond var framan á brjóstinu. Svo var hún í
strigapilsi og silkipilsi og undirpilsi og einhverjum þremur aukapils-
196