Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Page 52
Tímarit Máls og menningar
Fólk setti þá upp svip:
Já, þið segið þetta núna þegar engin leið er að sækja lögregluna.
Svo reyndi það að renna ekki einu sinni augunum til þessarar
þjófafjölskyldu sem hafði stolið buddu af gamalli konu.
Gamla konan var orðin efins í framan um hvort hún ætti að gráta
og vekja meiri samúð eða heimta rétt sinn og láta handtaka fólkið.
Hún hætti við að gráta og fór til vinkonu sinnar og bað hana opna
töskuna.
Eg er búin að því, svaraði vinkonan. Ég fann ekkert.
Gamla konan lagði samt fast að henni að opna töskuna þótt hin
segði með yppingum „Hér er ekkert“. Þá fór sú gamla snöggt með
höndina niður í töskuna og þreif plastpokann sinn. Upp gaus þefur af
steiktu svínakjöti milli normalbrauðsneiða sem dagblöð höfðu verið
vafin um. Ég leit undan því þessi portúgalska lykt vekur mér alltaf
hugsun um hræðilegan niðurgang á sveitaskemmtun. En í pokanum
var líka buddan. Gamla konan þreif budduna laumulega og þorði
ekki að sýna hana, enda hefði fundurinn vakið slíkt uppnám að
líklega hefði sú gamla ekki komist með alla limi heila úr lestinni. Fólk
var orðið þannig á svip að það hefði uppgötvað þjófapakk og
heiðarlega gamla konu sem níðst var á með þjófnaði. Sú gamla vildi
ekki lækka í áliti.
Nú kom miðavörðurinn og góð ráð voru dýr. Sá sem er miðalaus í
lestinni getur hlotið 780 skildinga sekt. Tæki gamla konan fram
miðann losnaði hún við sektina en mundi glata samúðinni. Stöllurnar
litu útum lestargluggann í von um að lestin kæmist á stöð og þær
gætu læðst út, áður en miðavörðurinn kæmi að þeim, og einnig
íhuguðu þær að færa sig í fremri vagn og flýja undan frægð eða sekt.
En þá sagði eiginkonan miðaverðinum frá öllu og hann renndi
rólegur augum að gömlu konunni en fór sér ekki óðslega. Honum lá
ekkert á. Nú færðist hann nær og gömlu konurnar ókyrrðust. Dálítil
stund var síðan sú gamla fann budduna og stöðugt erfiðara fyrir hana
að segja frá fundinum. Tveir bekkir voru nú eftir, og annað hvort
tapaði hún frægðinni eða fengi sektina. Þá ákvað hún skyndilega að
frægðin væri minna virði en sektin. Hún hóf upp budduna og sagði:
Buddan er fundin í plastpokanum mínum innan um nestið.
Hún þefaði af henni, og aðrir hefðu getað fengið að þefa og þá
hefði fundist á lyktinni af svínakjötinu að hún sagði sannleikann. En
186