Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Síða 67

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1985, Síða 67
Brúðan með því að finna felustaðinn og andlitið, og að þá hafi allir litið á mig og lokað mig inni í þögn, svo engin leið var út nema í gegnum guð: bæn til hans um að drepa frændann. En minnið er oft aðeins óskin. Fréttir bárust af honum stöku sinnum. Hann varð veikari og veikari. Farið var að tala um mann sem dæi í blóma lífsins. A þessum árum var mikið rætt um blóma lífsins. Yfir sjúkdóminum hvíldi ein- hver leynd. Farið var að fylgjast með því hvort sorgin sæist ekki á foreldrum hans, hvort fjölskyldan bæri ekki sorgina utan á sér. Varfærni fór að gera vart við sig í daglegri umgengni. Hún er sú virð- ing sem alþýðumaðurinn ber fyrir dauðanum. Og svo dó frændinn. Þá fór strax að kvisast út um eðli sjúkdóms- ins, að hann hefði fengið berklana neðan í sig en leynt því, en ef hann hefði sagt frá því hefði eflaust verið hægt að lækna hann. Sagt var að hann hefði verið sæll að fá að fara. I raun og veru þótti það bera vott um mannlega reisn að hafa heldur viljað deyja en viðurkenna að sjúk- dómurinn hefði gripið um sig á hinum leynda stað. Okkur krakkana hryllti við berklasjúkum eistum og við sættum okkur við dauðann, að minnsta kosti þann sem aðrir verða að lúta, meðan maður er sjálfur svo ungur og hraustur og dauðinn í órafjarlægð nema sem áleitin hugsun sem hjálpar manni við að hræða sjálfan sig. Þegar líkið var flutt heim fyllti kistan næstum stofuna. Við komum á undan athöfninni. A kistunni var skál með vatni, því það átti líka að skíra. Innan skamms fylltist húsið. Félagar hans af sjónum voru of þreknir fyrir ganginn. Við fótalag kistunnar sátu foreldrar hans. Hitinn varð ógurlegur í hinu þrönga húsi. Sjómennirnir voru svo heitfengir. Smám saman fór að myndast hvít húð inni á skálinni. Þetta voru smábólur sem spruttu fram við hitann. Allt í einu ímynd- aði ég mér að eitur hefði stigið úr kistunni og komist í vatnið, og þegar höfuð barnsins yrði fært að skálinni og presturinn ysi það vatni mundi barnið detta niður dautt eða eitur komast í höfuð þess sem hlyti að gera það brjálað. En ekkert gerðist. Það var ekkert grátið. Aðeins eitt tár rann úr vinstra auga afa míns. Mér þótti undarlegt að hægt væri að gráta með öðru auganu og aðeins einu tári. Tárið var lengi á kinninni og ég beið eftir að það rynni niður eða hann stryki það burt. En það var bara þarna eitt, en enga geðshræringu að sjá á auganu. Barnið var skírt. Síðan var jarðað. Sagt var að við börnin hefðum TMM V 201
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.