Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1987, Síða 22

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1987, Síða 22
Tímarit Ma/s og menningar Hann er markaður ógæfunni eins og Þorkell hákur og Guðmundur ríki segja báðir er þeir sjá hann fyrst á Alþingi. Það er ekki persónuleiki Skarphéðins eða persónulegar aðstæður sem reka hann til vígsins, heldur ógæfan sjálf. Ef við skoðum setningarnar sem vitnað er til hér að ofan, sjáum við að ekki er lýst orsakatengslum. Setningar tengjast af „þá“, „og“ eða „en“ ístaðt.d., „því“, „vegna þess", „þannig“, o.s.frv. Þetta er nefnt parataxis: sagan er sett fram sem röð staðhæfinga en ekki sem orsakaferli og það gerir það m.a. að verkum að frá- sögnin virðist líflegri en ella. í stað flókinna skýringa er okkur einfaldlega sagt að svona hafi þetta farið fram — fyrst mæltu þeir í mót, svo fóru þeir að trúa og síðan gerðust þá í fáleikar af þeirra hendi. Hér er ekki verið að sannfæra lesand- ann um réttmæti þess sem sagt er frá. Textinn er ekki skýring á því af hverju sagan gerðist, heldur er hún látin standa ein sem dramatískur veruleiki. S1 ík framsetning hefur þá sérstöðu að þó efnið sé meðhöndlað sem veruleiki er ekki þörf á að réttlæta veruleika þess. Að þessu leyti er hún frábrugðin raunsæis- stefnu 19- aldarinnar þar sem þess var krafist að veruleiki sögunnar endur- speglaði veruleika lesandans og réttlæting verksins var fólgin í þeirri speglun. Hins vegar er framsetningin í Brennu Njáls Sögu um margt svipuð því sem nú er aftur farið að tíðkast og sumir kalla magískan realisma.'01 í Lýgneren ergefin skýring áatburðum sem fullnægir öllum kröfum aldamóta- bókmenntanna um sálfræðilegt raunsæi, en um leið virðist tragedían glatast. Ógæfan verður afleiðing veikleika, eins konar mistök sem Skarphéðni verða á af barnaskap. Það er sorglegt, en engan veginn tragískt. í Brennu Njáls Sögu eru þessi atvik aldrei skýrð út frá sálfræðilegum forsendum, heldur eru þau þáttur í örlögum samfélagsins, byggð á dýpri nauðsyn. Eins og Halldór Laxness bendir á er það örlagatrúin sem einkennir söguna og þykir ekki þörf fyrir skýringar afþví tagi sem Jóhann Sigurjónsson gefur í leikritinu. Það eru ekki tilfínningar eða ákvarðanir persónanna sem eru hreyfiafl sögunnar, heldur forlögin sjálf. Það er ekki höfuðatriðið að Mörður hafi komið af stað illindum sem síðan leiddu af sér víg Höskulds, heldur er vígið nauðsynlegur þáttur í tragedíunni sem ákvörðuð hefur verið fyrirfram. í því er merking þess fólgin. V Örlagatrúin er einn sterkasti þátturinn í sígildum harmleikjum, en það er langt í frá að hún sé óskyld þeim einkennum sem rædd voru hér að ofan: móthverfum ósamrýmanlegra viðhorfa. Við sjáum að þó vandinn skapist af slíkum móthverf- um þá er það nauðsyn forlaganna sem rekur söguna áfram. Ef ekki kæm i ti 1 þessi nauðsyn mætti jafnvel hugsa sér að allt færi vel í harmsögunni. Ef vilji söguper- sónanna réði mætti án efa leysa vandann án þess að til blóðsúthellinga eða ann- 284
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.