Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Síða 57

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Síða 57
Páll Skúlason Sagan og tómið I grein sinni um markmið sögukennslu segir Gunnar Karlsson undir lokin: Við höfum engar meginlínur í sögunni eins skýrar og þjóðernisstefna vekj- andi sögukennslu var, engan jafneinfaldan mælikvarða á hvað skiptir máli að kenna, ekki jafnauðvelda leið til að skapa spennu og átök og virkja tilfinn- ingar nemenda. Sennilega verðum við að sætta okkur við að þeir sælu tímar séu liðnir og komi ekki aftur um okkar daga. I staðinn verður þá að treysta á náttúrulegan áhuga barna og unglinga á framandi mannlífi og forvitni um uppruna hlutanna í kringum okkur. Vandi sögukennara og kennslubókahöf- unda er einungis þeim mun meiri að gera námsefnið aðlaðandi, hlutverkið þarf ekki að vera vonlaust þess vegna. Auðvitað verðum við samt að velja kennsluefnið úr ótölulegu magni þess sem hægt væri að reyna að kenna, og er þá ómaksins vert að finna sér einhvern mælikvarða að miða við.2 Mælikvarðinn sem Gunnar leggur svo til er í anda þjóðernisstefnunnar gömlu í sögukennslu, því að sögukennsla er líkleg til að heppnast vel „ef hún fjallar um þá þætti mannlífsins sem eru ofarlega á baugi í samtíðinni“. Höfuðforsendan er sú „að öll markverð sagnfræði fjalli um fortíð þeirra viðfangsefna sem við erum að fást við nú og þeirra sem við stöndum frammi fyrir í framtíðinni“.3 Gunnar nefnir tvö dæmi. Hið fyrra lýtur að stjórnmálalífi okkar, ef það er notað sem mælikvarði á mikilvægi þjóðfé- lagsverkefna. Hér sé höfuðverkefnið að verða skipting framleiðslunnar meðal þegnanna. Síðara dæmið lýtur að stjórnmálum heimsins, misskipt- ingu auðs í heiminum, átökum ríkra þjóða og snauðra. Nú langar mig til að koma að þessu efni frá nokkuð annarri hlið en Gunnar. Hann lítur á málið frá sjónarhóli sögukennarans og fjallar um þau markmið sem honum ber að hafa í huga með kennslu sinni. Höfuðvandinn er sá að ná til nemendanna, fá þá til að kynna sér söguna svo að þeir hafi sem mest gagn og gaman af. Vandinn sem ég vil leiða hugann að tengist þeirri forsendu sem Gunnar tekur heils hugar undir „að öll markverð sagn- fræði fjalli um fortíð þeirra viðfangsefna sem við erum að fást við nú og þeirra sem við stöndum frammi fyrir í framtíðinni“. Hvernig ætlum við að afmarka þessi viðfangsefni? Gunnar nefnir dæmi úr stjórnmálalífinu, inn- lendu og erlendu, og ábendingar hans eru vafalaust bæði þarfar og réttmæt- ar. En ýmislegt annað hlýtur að koma til álita allt eftir því hvað talið er 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.