Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Side 100

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Side 100
Tímarit Máls og menningar „Þetta handa þér. Frá mér þetta handa þér, já, já, fallegt!“ Um leið sneri ég mér við, ákafur að sjá hvernig Ayl myndi örugg- lega skína á nýjan hátt í þessari almennu umbreytingu; en ég sá hana ekki: það var eins og hún hefði fundið leið til að fela sig, til að laum- ast í burtu eftir sprungunum í mósaikinu þegar litlaust yfirborðið splundraðist skyndilega. „Ayl! Vertu ekki hrædd, Ayl! Sýndu þig og sjáðu!“ En bogi loftsteinsins hafði fjarlægst Sólina, og Jörðin var hertekin af varanlegum grámanum á ný, jafnvel grárri en áður, fyrir blinduð- um augum mínum, og ógreinilegri, og mattari, og á henni var engin Ayl. Hún var í alvöru horfin. Eg leitaði hennar langa titrandi daga og nætur. A þessu skeiði prófaði Jörðin sig áfram með formin sem hún tók á sig seinna: hún prófaði þau með þeim efnum sem voru tiltæk, þó þau væru ekki alveg þau hentugustu, því ljóst var að tilraunirnar voru ekki endanlegar. Tré úr reyklitu hrauni teygðu úr kræklóttum greinum sem báru blöð úr þunnu flögubergi. Fiðrildi úr ösku flögr- uðu yfir leirmóum, svifu yfir baldursbrám úr möttum krystal. Ayl gat verið litlaus skuggi sem sveiflaðist af grein í litlausum skóginum eða beygði sig eftir gráum sveppum undir gráum runnum. Hundrað sinnum fannst mér ég glitta í hana og hundrað sinnum fannst mér ég týna henni aftur. Eg flutti mig af öræfunum á byggðu svæðin. Um þær mundir unnu ókunnir smiðir, sem skynjuðu hvaða breytingar voru í vændum, að mótun ófullburða útgáfu af fjarlægri, mögulegri framtíð. Eg fór hjá stórborgum hlöðnum úr grjóti; ég fór gegnum fjall sem var sundurstungið af göngum eins og bústaður einsetu- manns; ég kom að höfn sem lá út í leðjuhaf; ég kom að garði þar sem einsteinungar risu til himins upp úr sandinum. Grátt bergið í einsteinungunum var þakið munstri úr ógreini- legum gráum æðum. Eg staðnæmdist. I miðjum garðinum var Ayl að leik með vinkonum sínum. Þær köstuðu bolta úr kvarsi upp í loft og gripu. Einhver kastaði honum of fast, boltinn lenti í seilingar- fjarlægð frá mér og ég greip hann. Þær dreifðu sér til að leita að honum; þegar ég sá Ayl eina, kastaði ég boltanum upp í loft og greip aftur. Ayl hljóp þangað: í felum kastaði ég kvarsboltanum og dró Ayl lengra og lengra í burtu. Að lokum steig ég fram; hún 90
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.