Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Side 111
Hnúturinn óleysanlegi spyrntu fótunum í jörðina eins og þegar báti er ýtt á flot, eins og það væri jörðin með allri sinni óreiðu sem myndi sökkva í straum- inn en þau stæðu kyrr í eilífu faðmlagi. Fallið tók fljótt af því rústirnar stóðu aðeins nokkra metra upp úr. Þau lentu í vatninu og sukku í þéttum faðmlögum og héldu niðri í sér andanum. Eftir því sem þau sukku dýpra urðu líkamar þeirra léttari. Þau opnuðu augun. Frá árbotninum séð sýndist vatnið vera blátt og varð stöðugt skærblárra uns það líktist engu nema skærasta kristalli sem brotnaði svo við enni þeirra á leiðinni upp til að ná andanum. Sama eðlishvötin og fékk þau til að sveigja líkamann þar til þau náðu yfirborðinu kom þeim til að lyfta höfðinu upp úr, anda djúpt að sér og loka munninum áður en þau sukku á nýjan leik. Artúr reyndi að bera uppi líkama Aróru með öðrum handleggn- um og synda með hinum, það gerðist ósjálfrátt en var ekki ásetn- ingur hans. Þótt þau hefðu verið samtaka í þrekraun sinni breyttu þau um stöðu á því andartaki er þau stukku. Þá færðust þau dálítið til í bandinu sem hélt þeim saman og sneru ekki lengur augliti til auglitis heldur voru nærri því samsíða. Artúr hristi burt hárið sem lá yfir augum hans og leit á Aróru. Að þessu sinni voru augu hennar ekki lokuð heldur þvert á móti galopin og angistarfull svo andlit hennar virtist smærra og hún varð barnsleg og veikbyggð að sjá, svipt öllum lífskrafti. Óumræðileg blíða og dapurleiki fékk hann til að gleyma hættunni, berjast gegn henni af alefli. Hann sló ákaft um sig handleggjunum og stakk sér í vatnið. Með hægri handleggnum fleytti hann sér áfram á hliðinni, áleiðis að bakkanum á móti og tókst með hinum handleggnum að halda henni á floti. Eftir hið ósjálfráða viðbragð er þeim skaut báðum upp á yfirborðið fann Ar- óra fyrir öflugri mótspyrnunni sem líkami hans veitti gegn vatns- flaumnum þegar lífshvötin vaknaði skyndilega með honum. Aðeins einn ásetningur bærðist í huga Aróru: að lyfta höfðinu, halda því of- ar öldunum sem kaffærðu hana af og til. Allur hennar fyrri vilji og óttaleysi hafði gufað upp í stökkinu út í tómið. Eftir sat aðeins óvið- ráðanleg angistin og skýr vitund um þann kraft sem svipti henni með sér og ósveigjanleika þessa sama krafts sem ekki varð hönd á fest þar sem hann streymdi fram. En undir bandinu sem herti að mitti hennar bjó annað afl sem var þrautseigara og kröftugra en hennar eigið og opnaði þeim leið yfir bylgjurnar. 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.