Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 128

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1989, Page 128
Tímarit Máls og menningar læðist að manni að spádómur Spegils- ins, sem fylgdi flokknum úr hlaði þegar hann hóf göngu sína, ætli að rætast, en hann var á þá leið að síðasta bindið myndi sjá dagsins ljós á 800. ártíð Sig- urðar Nordals. Þar sem fræðin hafa engan veginn staðið í stað á þessari hálfu öld eru því sum elstu bindin þegar orðin „úrelt“, ef svo má segja, áður en nokkuð bólar á síðustu bindunum: þau eru kannske ekki gerð eftir þeim hand- ritum sem nú eru talin best, þau viðhorf og skoðanir sem þar koma fram (og út- gáfa sagnanna fer jafnvel eftir) hafa ver- ið dregin í efa, orðið að víkja fyrir öðr- um og þar fram eftir götunum. Þótt „úrelt“ útgáfa haldi sínu gildi sem vitn- isburður um ákveðið stig í þróun fræð- anna, er hætta á því að þessi seinkun valdi því að heildarsvipur útgáfunnar raskist og síðari bindin byggist kannske á öðrum forsendum en hin fyrri. Að réttu lagi hefði útgáfu íslenzkra fornrita átt að vera lokið fyrir einum tíu eða tuttugu árum, - og hefði þá þegar átt að hefjast handa um að endurskoða hana í Ijósi nýrra rannsókna. Á „alþýðlegum útgáfum" af ýmsu tagi hefur sem betur fer ekki verið neinn hörgull undanfarna áratugi og væri langt mál að telja alla þá flokka og sérútgáfur sem völ hefur verið á. Hefur nú enn ein bæst í hópinn, en það er sú íslendingasagnaútgáfa Svarts á hvítu, sem hér verður fjallað um. Rétt er að benda á það strax í upp- hafi, að þessi útgáfa er að því leyti ólík hinum fyrri, að hún er margþætt, höf- uðkirkjunni fylgja sem sé ýmsar annexíur; má því segja að hún falli ekki að öllu leyti undir þá flokkaskiptingu sem hér hefur verið lýst, og sé henni ætlað nokkuð stærra hlutverk en hingað til hefur tíðkast í „alþýðlegum útgáf- um“. Kjarni hennar er útgáfa á hinum eiginlegu Islendingasögum og Islend- ingaþáttum án nokkurra skýringa eða orðamunar en með almennum inngangi um sögur og öðrum um þætti. Kom hún upphaflega út í tveimur þykkum bindum, en er nú komin út aftur í þremur bindum, sem eru heldur hand- hægari og í snotrum kassa. Við hliðina á þessari heildarútgáfu hafa svo valdar sögur verið gefnar út í smærri bókum undir heitinu „Sígildar sögur“ og eru komin út tvö bindi í þeim flokki. Hvoru þeirra fylgir sérbindi með sér- stökum inngangi fyrir hverja sögu, ítar- legum skýringum, kortum, ættartölum, teikningum af ýmsum munum og ágæt- um myndskreytingum eftir Steingrím Eyfjörð Kristmundsson. Þar sem blað- síðutalan er höfð hin sama í „Sígildum sögum“ og heildarútgáfunni, er einnig hægt að nota skýringarnar með hinni síðarnefndu. Loks fylgir útgáfunni stórt „sagnakort" sem hægt er að setja á vegg. Á það eru ekki aðeins merktir „sögu- staðir“ af margvíslegu tagi, heldur líka einstakir atburðir úr sögunum (með til- vísunum í sagnaskrá, sem er á kortinu) og jafnvel atriði úr atvinnulífinu sem í þeim eru nefnd. Ymsar fleiri upplýsing- ar eru á kortinu, m.a. fylgja því smákort sem á eru merkt sögusvið einstakra sagna. Það má því segja, að þessi útgáfa Svarts á hvítu sé í heild sinni einnig „menntamannaútgáfa“, jsótt það sé kannske á annan hátt en Islenzk fornrit, og að einu leyti a.m.k. er hún gagnleg viðbót við það heildarsafn: við útgáfu ýmissa sagna, sem eru í elstu bindum Fornritanna, hafa útgefendur Svarts á hvítu getað stutt sig við nýjustu niður- 118
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.