Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Page 17

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1994, Page 17
Raunsæisgagnrýnin gengur út írá því að ljósmyndin sé fullkomin eftirlíking sem engan svip getur borið annan en þann sem hún hermir svo fullkomlega eft ir. Að hún geti hvorki bætt við né dregið frá þeim svip sem hluturinn sýnir af sér og sé því óhjákvæmilega bundin við ásýnd hans. Samkvæmt þessu viðhorfi er ljósmyndin í senn yfirborðsleg og sviplaus — hún býður ekki upp á listræna túlkun og ber því sjálf engan svip sem heitið getur. Gagnrýni mín beinist hins vegar fyrst og fremst að ákveðinni stöðnun og þröngsýni innan ljósmyndunar sem skert hefur möguleika hennar til „sjálfskönnunar". Tillögur mínar um aðra sýn og umgjörð en þá sem tíðkast innan raunsæisrammans ber fremur að skoða sem spurningar en forskriftir. Ljósmyndir, hvort heldur í raunsæisham eða ekki, geta vissulega oft verið sviplitlar og innantómar að sjá, en slíkt er engan veginn bundið eðli þeirra eins og andstæðingar „ljósmyndaraunsæisins" halda gjarnan fram. Ljós- myndin er ekki eftirlíking heldur raunsýnd hlutar, hún ber samsetta ásýnd og hefur ávallt möguleika til að draga fram þann hluta ásýndarinnar sem hún á ein. Þar með opnast henni jafnffamt möguleiki á að yfirstíga „ásýnd- ina“ sem slíka, sýna sitt innra eðli og jafhvel, ef vel tekst til, eitthvað af eðli fyrirmyndarinnar líka. Möguleikar hennar til túlkunar kunna að vera minni en meðal annarra listgreina, en sá munur — ef einhver er — er munur stigs en ekki eðlis. Að lokum: Raunsýndin er hin verufræðilega grunnstaða ljósmyndarinnar en ljósmyndin hefur ýmsa aðra eðliseiginleika til að bera sem einnig verður að huga að ef skilgreina á stöðu hennar gagnvart veruleikanum og listinni. Ljósmyndin er á vissan og ótvíræðan hátt skilyrt af veruleikanum en er þó hvorki eftirlíking né raunsæisþræll. Því reynist sú samlíking sem hér að ffaman var gerð með Ijósmyndum og skuggamyndunum í helli Platons vera villandi og fölsk. Hellislíkingin stendur þó enn fyrir sínu en með öfugum formerkjum—það eru hugmyndir manna um eftirlíkingar sem hafa brugð- ið upp tálsýn af veruleika ljósmyndarinnar. Sú skuggamynd fellur ekki frá ljósmyndinni heldur á hana, því eins og Platon benti á, finna þeir seint sanna þekkingu sem hafa eftirlíkingarnar einar fyrir augum. Dvölin í hellinum hefur dregist á langinn en leiðin út liggur til sólarinnar, „glóandans“ sem ljósinu gefur mynd og myndunum ljós. Ljósmyndir eru sólmyndir en ekki skuggamyndir. TMM 1994:2 15
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.