Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2011, Page 94
94
GUÐNI ELÍSSON
að nýta sér þann munað sem tæknin hefur upp á að bjóða og fljúga heims-
horna á milli, ekki bara í sumarleyfum heldur líka á ráðstefnur um lofts-
lagsmál.4
Fæstir kjósa að líta á sig sem leiksoppa ósiðlegra hvata. Þegar sökin
tekur að bíta er um tvennt að velja. Að vinna á sektarkenndinni á upp-
byggilegan hátt og taka upp nýja og betri siðu, eða að halda í hið var-
hugaverða lífsmynstur, koma sér hjá því að greina það, og neita að horfast
í augu við afleiðingar þess. Langflestir velja síðari kostinn þegar kemur að
orkusóun og því skiptir miklu máli að greina í hverju afneitun almennings
liggur svo nokkur von sé til að snúa megi þróuninni við.
ýmsar leiðir eru færar vilji einstaklingur losa um þá innri spennu sem
óæskilegt athæfi hans getur valdið, haldi hann því til streitu. Ein er sú að
ýta burtu óþægilegum hugsunum með því að andmæla öllum rannsóknum
sem gefa til kynna að veðurfar fari hlýnandi og halda viðhorfi efasemda-
manna (eða afneitunarsinna) um vísindalegt gildi þeirra á loft. Svo er ein-
faldlega hægt að fagna hlýnuninni og segja hana af hinu góða. Einnig eru
þeir til sem viðurkenna vandann en setja hann í villandi samhengi. Þeir
leggja sitt af mörkum með því að taka innkaupanetið alltaf með sér í mat-
vöruverslunina, en láta þar við sitja. Eins og ég ræði síðar er sá losunar-
sparnaður sem fæst við þessa aðgerð hverfandi í samanburði við ýmsar
aðrar aðhaldsaðgerðir. Enn aðrir draga sig einfaldlega í hlé vegna þess að
þeir telja það koma sér illa að tjá sig um jafn umdeilt málefni. George
Marshall bendir á að í löndum þar sem engir skipta sér af stjórnmálum
nema þeir sem styðja ráðandi öfl hverfi hinir ósáttu inn á heimilin. Þeir
taki ekki þátt í opinberri umræðu og leggi fremur áherslu á íþróttir, ferða-
lög og fjölskylduna. Marshall hefur á orði að í Brasilíu áttunda áratugarins
hafi orðið til hugtak sem lýsi samfélagssýn slíkra einstaklinga. Hún hafi
verið kölluð „innerism“ eða „innhyggja“, en þá verður félagsleg innhverfa
að lífsafstöðu.5
4 Þessi þversögn hefur að sjálfsögðu iðulega verið rædd. ýmsir hafa komið aðgerð-
arsinnum til varnar og bent á mikilvægi þess að breiða út boðskapinn og að vitund-
arvakning almennings hljóti að vega þyngra þegar upp er staðið. Enginn hefur þó
að mér vitandi greint hvernig hugmyndin að baki alþjóðlegu háskólasamfélagi er
liður í alþjóðavæðingunni og því hluti af gangvirki sem gengur þvert á ábyrgðar-
fullan lífsstíl og er erfitt að sporna gegn. Sá sem ekki ferðast á alþjóðlegar ráðstefn-
ur nokkrum sinnum á ári og vinnur í sínu tengslaneti á það á hættu að einangrast
og dæma sig úr leik í umræðunni, jafnvel þegar hún snýst um loftslagsvána.
5 George Marshall, „The psychology of denial“, bls. 41. Brasílíska innhyggjan er
aug ljóst einkenni á samfélögum þar sem lýðræðislegir stjórnarhættir hafa verið