Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2011, Page 215
215
AKADEMÍSKT FRELSI OG FRJÁLSAR RANNSÓKNIR
nemandi við UCLA (Kaliforníuháskóla í Los Angeles), Bruins nemenda-
sambandið sem var ætlað að berjast gegn vinstri slagsíðu í Kaliforníuháskóla.
Hann bauðst líka til að borga stúdentum við háskólann fyrir að taka upp
fyrirlestra vinstrisinnaðra prófessora. Jones var sannfærður um að
Kaliforníuháskóli væri að lenda í höndunum á vinstri öflum með tilheyr-
andi blindri flokkshollustu og innrætingu, en dró fjárframlög sín til baka
eftir að stjórnendur háskólans höfðu ráðlagt honum það. Ekki þó fyrr en
hann hafði náð að telja upp „Þrjátíu þrjóta“ en það var listi prófessora við
Kaliforníuháskóla sem hann taldi vera of frjálslynda.64
Stjórnarnefnd og háskólayfirvöld réttlæta stundum ráðningar, brott-
rekstra og ákvarðanir um stöðuveitingar með því að bera fyrir sig hliðar-
spor í pólitískri afstöðu viðkomandi manneskju. Það gerðist þegar stjórn-
arnefnd Colorado háskóla þröngvaði háskólanum til að reka Ward
Churchill en hann bar einhverju sinni fórnarlömb úr árásunum 11. sept-
ember 2001 saman við skriffinna nasismans. Hvað sem manni finnst um
rökþunga Churchills er lítill vafi á því að hann var ekki rekinn fyrir að hafa
falsað atriði í ferilskrá sinni eins og haldið var fram. Það var aðeins yfir-
varp, því raunverulega ástæðan var óánægja skólayfirvalda með hugmyndir
hans. Árið 2009 tapaði Colorado háskóli máli sem Churchill höfðaði á
grundvelli Stjórnarskrárbreytingar númer eitt vegna brottvikningar sinn-
ar. En sigur Churchills sumarið 2009 var aðeins táknrænn: Fylkisdómari
hélt því fram að háskólinn væri ekki skyldugur til að ráða hann aftur þrátt
fyrir að hafa tapað máli sem varðaði akademískt frelsi.65
Í öðrum tilfellum geta hömlur á akademískt frelsi tekið á sig óvenju-
legar myndir. Frá því í maí 2006 þar til í ágúst 2008 var prófessorum í
Flórída ekki leyft að fara til Kúbu til að stýra rannsóknum. Þótt stjórnvöld
Bandaríkjanna, sem varla er hægt að segja að beri vinarhug til Kúbu, leyfi
slíkar rannsóknir var bannað með lögum í Flórída að háskólakennarar við
ríkisháskóla hefðu nokkur samskipti við eyjarskeggja. „Skattgreiðendur á
Flórída vilja ekki horfa upp á að fjármunir þeirra séu notaðir til að styðja
eða styrkja hryðjuverkastjórnvöld á sama tíma og Bandaríkin eiga í stríði
við hryðjuverkamenn“, sagði David Rivera, repúblikani af kúbverskum
64 Piper Fogg, „No Bounty for Reports of ‘Bias’ at UCLA“, Chronicle of Higher
Education, 3. febrúar 2006.
65 Dan Frosch, „Court Upholds Dismissal of Colorado Professor“, New York Times,
8. júlí, 2009, Peter Schmidt, „Judge Rejects Ward Churchill’s Plea for Re -
instatement, Vacates Verdict in His Favor“, Chronicle of Higher Education, 8. júlí
2009.