Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Blaðsíða 100
99
áhrif á lestur, en báðir eigi það sameiginlegt að telja sig geta fellt eigin
lestur að lestrarreynslu annarra. Long hefur meiri áhuga á því að skoða
lestrarvenjur almennra lesenda sem upplifa sama verkið á margvíslegan
hátt þar sem þeir koma að því með ólíkum hætti vegna bakgrunns síns og
lífsreynslu. Lífsreynsla lesandans vegur að mati Long þungt í greiningu
hans á skáldverkinu sem hann hefur undir höndum.30
Long bendir á að lesendur séu ólíkir rétt eins og leshringir. Meðlimir
sama leshrings séu líka ekki endilega allir af sama kyni eða úr sömu stétt,
aðstæður þeirra séu mismunandi, trú þeirra og lífshættir. Þeir séu einfald-
lega að takast á við mismunandi hluti í lífi sínu.31 Túlkun Long er í sam-
ræmi við greiningu Söruh Twomey sem hefur einnig skoðað hvernig lestur
sem félagsleg athöfn umbreyti lesendum. Í greininni „Reading Woman.
Book Club Pedagogies and the Literary Imagination“ segir hún leshringi
endurskapa hinn félagslega heim og stuðla að endurmótun og breytingu.
Þeir geti einnig verið leið til þess að rannsaka mismunandi sjálfsmyndir, en
þær mótist gjarnan í samskiptum við annað fólk, í lestri á bókum og í ýmiss
konar samskiptatækni. Sameiginlegur lestur á bókmenntatexta geti skapað
möguleika á að túlka í senn persónulega og sameiginlega reynslu.32
Ýtt er undir þessa samanburðaraðferð í ýmsum þeirra spurningalista
sem ætlaðir eru Austen-leshringjunum. Sem dæmi má nefna bók Marilyn
Brant, According to Jane, þar sem draugur Jane Austen tekur sér bólfestu í
höfði háskólanemans Ellie Barnett. Ellie er neydd til þess að takast á við
hugmyndir Austen um heppilegan eiginmann og lesandinn líka. Í sjöundu
spurningunni segir: „Ellie lýsir sjö „manngerðum“, rétt eins og Austen, en
þær byggja á persónum skáldkonunnar sem eru fulltrúar hópanna“. Þannig
er Darcy ríki, heiðarlegi piparsveinninn sem lærir sína lexíu á meðan
Wickham er erkitýpan fyrir hinn svikula þokkafulla karlmann. Spurt er:
„Er hægt að flokka einstaklinga svona auðveldlega? Fellur einhver sem þú
þekkir undir flokkunarkerfi Elliear eða Austen? Eða heldur þú að mann-
legt atferli sé flóknara en svo að það megi skýra út frá stöðluðum skáld-
skaparímyndum?“33 Að sama skapi er þessari spurningu varpað fram á
listanum undir lok Just Jane eftir Nancy Moser: „Jane og fjölskylda hennar
30 Sama heimild, bls. 27–29.
31 Sama heimild, bls. 157.
32 Sarah Twomey, „Reading woman. Book club pedagogies and the literary imag-
ination“, Journal of Adolescent & Adult Literacy 5/2007, bls. 398–407, hér bls.
398–402.
33 Marilyn Brant, According to Jane, bls. 267–268.
VISKA JANE AUSTEN OG FERÐ LESANDANS