Peningamál - 01.11.2000, Síða 22
2,5 ma.kr. fram úr fjárlögum og tilfærslur rúman
milljarð. Mestu skipta 2 ma.kr. umframgjöld í heil-
brigðisgeiranum, en rík tilhneiging hefur verið til
þess á síðustu árum að útgjöld til heilbrigðismála fari
fram úr fjárlögum. Aðrar helstu ástæður hækkunar
útgjalda umfram fjárlög eru hækkun vaxtagjalda,
einkum vegna erlendra vaxtabreytinga, og stofnun
sendiráðs í Japan sem ekki var á fjárlögum.
Lánsfjárafgangur hækkar heldur minna en sem
svarar bættri afkomu, um 7 ma.kr. Ráðstöfun hans er
nokkrum vandkvæðum bundin í ljósi veikari stöðu
krónunnar á síðustu mánuðum. Mikilvægt er að ráð-
stafa afgangnum með hætti sem samrýmist því mark-
miði að draga úr verðbólgu og styrkja stöðu krónunn-
ar. Því má ekki greiða upp meiri erlendar skuldir en
gjaldeyrisforðinn þolir.
Útlitið um niðurstöðu ríkisfjármála árið 2000 má
draga saman með eftirfarandi hætti: Sé horft framhjá
óreglulegum lífeyrisgreiðslum, vöxtum og eigna-
söluhagnaði er nokkur bati milli áranna 1998 og
1999 og haldið er í horfinu á yfirstandandi ári.14
Fjárlagafrumvarp 2001 lagt fram með metafgangi
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2001 er gert ráð fyrir að
tekjur og gjöld hækki nokkurn veginn í takt við
þjóðhagshorfur. Ákveðið hefur verið að taka fé sem
áður var eyrnamerkt Atvinnuleysistryggingasjóði og
veita því í fæðingarorlof, sem áætlað er að muni
kosta 2 ma.kr. á árinu og 3 ma.kr. þegar löggjöf um
orlofið er komin.15 Á árinu 2001 á lánsfjárafgangur
að vaxa úr 27,5 ma.kr. í ár í 34,8 ma.kr. 2001. Það
vekur upp þá spurningu hvernig þessum afgangi
verði best ráðstafað. Að óbreyttu gæti niðurgreiðsla
erlendra lána raskað markmiðum um lækkun verð-
bólgu vegna þrýstings á gengið. Mikil uppgreiðsla
innlendra ríkisskulda gæti hins vegar skapað ótíma-
bæran þrýsting á langtímavexti til lækkunar. Vænlegt
virðist því að byggja upp verulega innstæðu í Seðla-
bankanum. Einnig mætti greiða niður skuld við líf-
eyrissjóði opinberra starfsmanna.
Útreikningar sýna að framleiðsluspenna nái há-
marki í ár og landsframleiðsla verði tæp 3% umfram
eðlilega nýtingu framleiðslugetu, en rúmlega 1% á
næsta ári (sjá ramma 2). Því mætti ætla að aukið
aðhald fælist í bættri afkomu á næsta ári. Afgangur
ríkissjóðs hækkar úr 27 í 30 ma.kr. en sá bati, eins og
hann birtist í áætlunum fjárlagafrumvarpsins, kemur
að mestu frá eignasölu. Batinn er ekki meiri en svo
að samkvæmt skilgreiningum Þjóðhagsstofnunar á
tekjum og gjöldum ríkissjóðs16 versnar afkoman
heldur milli ára, eða álíka og eðlilegt má telja vegna
minnkandi hagvaxtar. Meðfylgjandi línurit yfir af-
komu ríkisfjármála sýnir því heldur versnandi af-
komu milli áranna 2000 og 2001, en sveifluleiðrétt
afkoma batnar svolítið í ljósi minni hagvaxtar.
Afkoma sveitarfélaganna í landinu hefur undan-
farin ár verið mun verri en hjá ríkissjóði. Þau voru
rekin með 3 ma.kr. halla á árinu 1999, sem er 5% af
tekjum þeirra og skárra en 8% halli á árinu 1998.
Samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar verður hallinn 2,4
ma.kr. á þessu ári og 2,8 ma.kr. á því næsta. Þær áætl-
anir byggjast hins vegar á mun ófullkomnari upp-
lýsingum en fyrir liggja um ríkisbúskapinn. Hreinar
skuldir sveitarfélaga halda áfram að aukast, ef spár
Þjóðhagsstofnunar ganga eftir.
Samkvæmt uppgjöri Þjóðhagsstofnunar eftir al-
þjóðlegum stöðlum verður afgangur á rekstri hins
opinbera 17 um 20 ma.kr. í ár, sem er nokkru minna
en samanlagður afgangur á fjárlögum og rekstri
sveitarfélaga. Mismunurinn stafar einkum af því að
hagnaður af eignasölu telst ekki til tekna í þessu upp-
PENINGAMÁL 2000/4 21
Tafla 6 Yfirlit ríkisfjármála
Áætlanir
% af vergri landsframleiðslu 1998 1999 2000 2001
A Tekjur án eignsöluhagnaðar ...... 30,9 33,1 32,5 32,3
B Gjöld án lífeyrisfærslna,
vaxta og fjárfestinga ................. 24,1 24,9 24,2 24,1
C Gjöld án lífeyrisfærslna og vaxta 26,8 27,7 26,8 26,6
A-B............................................ 6,8 8,2 8,3 8,1
A-C............................................ 4,1 5,4 5,7 5,7
Heimildir: Fjármálaráðuneytið og Þjóðhagsstofnun.
15. Undanfarin ár hefur þetta fé verið tekið af Atvinnuleysistryggingasjóði
en hann hefur fært inneign á ríkissjóð. Nú verður sú færsla slegin af.
Sjóðsstaða í góðæri upp á 0,7 ma.kr. getur þó tæpast talist sterk.
16. Tímaraðir Þjóðhagsstofnunar, sem undanskilja söluhagnað frá tekjum,
eru einu samfelldu tímaraðirnar eftir að reikningshald ríkisins ger-
breyttist 1998.
17. Rekstur hins opinbera samanstendur af rekstri ríkis, sveitarfélaga og
almannatrygginga, en tryggingarnar eru hér á landi nánast undirdeild
hjá ríkinu.
14. Í þessum tölum hefur verið leiðrétt fyrir óreglulegri tekjufærslu vegna
Landssímans á árinu 1999.