Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 29

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 29
GLÓÐAFEYKIR 27 sláturhús um landið, jafnframt því að taka upp nýtt skipulag vinnu í slíkum húsum. Eitt þessara húsa skyldi vera á Sauðárkróki. Þá hafði nokkuð verið rætt um að stækka sláturhús félagsins. Á stjórnarfundi í árslok 1971 var samþykkt að hefja byggingu húss á samastað ogeldra húsið stóð, þar sem hægt væri að slátra 3000 fjár á dag og 40 nautgripum. I apríl árið eftir var málið enn til umræðu og þá ekkert talið því til fyrirstöðu að hefja framkvæmdir, svo fremi sem hið opinbera legði fram sinn hluta kostnaðar. Hann fékkst ekki nema að litlu leyti, en þrátt fyrir það var húsið byggt og tekið í notkun tveimur árum síðar. Þegar þetta var ákveðið sáu menn ekki fyrir þá þróun sem framundan var í málefnum landbúnaðarins, sem leiddi til þess mikla samdráttar sem orðið hefur, þannig að þessi mikla fjárfesting er ekki nógu vel nýtt. Mjólkursamlag Um sama leyti og sláturhúsbyggingin stóð yfir var byrjað að ræða um byggingu mjólkursamlags. Nefnd var kosin á aðalfundi 1928 til að undirbúa þetta mál. Á aðalfundi 1931 var upplýst að loforð hefðu fengist fyrir nyt úr a.m.k. 170 kúm. Það þótti hinsvegar heldur lítið og ákveðið að hefjast handa þegar fyrir lægju loforð um nyt úr 200 kúm hið minnsta. Árið 1933 kom fram hugmynd um að stofna frekar rjómabú, enda var það talið mun ódýrara. Rjómabú eða smjörbú höfðu þá starfað um nokkurt skeið eða allt frá aldamótum er fyrsta rjómabúið var stofnað að Seli í Hrunamannahreppi. I Skagafirði voru m.a. stofnuð rjómabú á Páfastöðum, en það var lagt niður þegar stofnað var annað við Staðará og síðast var stofnað rjómabú við Gljúfurá, en það hætti síðast starfsemi þessara búa eða 1919. Ekki varð af því að kaupfélagið stofnaði rjóma- eða smjörbú. Jónas Kristjánsson mjólkurbússtjóri á Akureyri, þá ráðgjafi ríkisstjórnar- innar um framlag mjólkurafurða, réð Skagfirðingum eindregið til að stofna fullkomið mjólkurbú. Var hafist handa eftir aðalfund félagsins 1934, en þar var lögð fram kostnaðaráætlun og teikningar. Mjólkursamlagið tók til starfa 16. júlí 1935. Þá voru ráðnir bílstjórar til að annast flutninga. Var héraðinu skipt í þijú flutningasvæði. Eitt

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.