Glóðafeykir - 01.04.1989, Page 33

Glóðafeykir - 01.04.1989, Page 33
GLOÐAFEYKIR 31 Verslunin Aukin umsvif kaupfélagsins í verslun um og eftir 1918 kölluðu á meiri húsakost og var ráðist í það síðla árs 1918 að kaupa hús og lóðir Sigurgeirs Daníelssonar. Arið 1920 var svo byggt við og ofan á Sigurgeirshús og 1931 var Grána keypt aftur. Kreppan skall mjög óvænt á 1930, en fór þó ekki að gæta hér að ráði fyrr en ári seinna. Þegar verð á gjaldeyrisvörum hafði lækkað allt að helming greip kaupfélagsstjórinn til þess ráðs að takmarka mjög vöruúttekt félagsmanna til að sporna gegn skuldaverslun. Grána var þá leigð um sinn vegna minnkandi viðskipta af þeim sökum. En fljótlega var þó sett upp verslun í Gránu og hafði félagið þá tvær búðir. Voru þær í daglegu tali ætíð nefndar Ytribúð og Syðribúð. Með stækkun bæjarins til suðurs þótti nauðsynlegt að koma upp verslun sunnar í bænum. Um þetta var rætt 1940. Fimm árum síðar bauðst félaginu á leigu verslun Þorvaldar Þorvaldssonar. Var gerður leigusamningur til fimm ára og var hann endurnýjaður 1950. Þegar frystihúsið var flutt út á Eyri 1953, var gamla húsinu við Freyjugötu breytt að innan og þar sett upp mjólkur- og kjötbúð og ennfremur kjötvinnsla. Um þetta leyti var mjög orðið þröngt um alla þætti verslunarinnar í gömlu Claessensbúð (Syðribúð) og Gránu (Ytribúð). Árið 1956 var alvarlega farið að huga að því að auka við verslunarhúsnæðið. Voru margir kostir skoðaðir. Þegar félaginu bauðst að kaupa hús og lóðir Sigurðar Sigfússonar, bæði búðina og Aðalból, hús K.G. kaupmanns, er stóð við hliðina á búðinni, var sá kostur valinn. Vefnaðarvörudeildin var flutt úr gömlu Syðribúðinni og kaupfélagsstjórinn flutti í íbúðina á efri hæðinni í þessu nýja húsi, sem nokkur ljómi var yfir á þessum árum. En Sigurður Sigfússon hafði verið skæður keppinautur kaupfélagsins. Kjöt- og mjólkurbúðin við Freyjugötu þjónaði aðallega bæjarversluninni, en varð fljótt of lítil. Því var ráðist í að byggja myndarlegt verslunarhús við Skagfirðingabraut. Árið 1961 var þar opnuð ein fyrsta kjörbúðin á íslandi, en það verslunarform var þá að ryðja sér til rúms. I þessu nýja húsi var einnig sérstök fiskbúð og mjólkurbúð og auk þess kjötvinnsla og reykofn á efri hæðinni.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.