Glóðafeykir - 01.04.1989, Page 35

Glóðafeykir - 01.04.1989, Page 35
GLOÐAFEYKIR 33 suður fyrir byggðina og byggja á lóð norðan Mjólkursamlagsins. Þá var sótt um lóðina sem Búnaðarbankinn stendur á, en fékkst ekki. Árið 1974 bauðst félaginu lóð í fyrirhuguðum miðbæjarkjarna við Ártorg. Var strax hafist handa. Þó gengu framkvæmdir fremur hægt framan af, enda engir lánasjóðir sem hægt var að sækja til í þessu efni. En samt var byggingunni þokað áfram og 19. júlí 1983 var Skagfirðingabúð opnuð. Með tilkomu hennar lögðust niður aðrar verslanir félagsins á Sauðárkróki nema kjörbúðin við Skagfirðinga- braut, byggingavöruverslun á Eyri og varahlutaverslunin sem einnig annaðist nú sölu landbúnaðarvéla. í janúarlok 1989 var svo kjörbúðinni einnig lokað, svo nú er verslunin, að undanskilinni þeirri er að framan greinir, öll undir sama þaki. Á annarri hæð nýja kaupfélagshússins hefur skrifstofum félagsins verið búin glæsileg aðstaða, en þriðja hæðin er að mestu í útleigu, enn sem komið er. Trésmíðaverkstæði Fljótlega eftir að mjólkursamlagið var reist var farið að ræða um að stofna byggingarsamvinnufélag og koma upp byggingavörudeild. Var kosin sérstök nefnd til að gera tillögur um þau mál. Lagði hún fram tillögur í 6 liðum. Ekki varð af framkvæmdum, en tillögunni var haldið vakandi. En það er ekki fyrr en 1950 sem trésmíðaverkstæði félagsins tók til starfa. Hugmynd nefndarinnar var að verkstæðið annaðist aðallega smíði á hurðum, gluggum og eldhúsinnréttingum fyrir félagsmenn, en K.S lánaði timbur til steypumóta gegn sanngjarnri greiðslu. Málin þróuðust þó ekki alveg svona, en verkstæðið vann aðallega fyrir kaupfélagið sjálft. Það var starfrækt samfellt til ársloka 1988, er það var selt. Bifreiða- og vélaverkstæði Þegar vélvæðing hófst fyrir alvöru upp úr kreppunni, lögðu félagsmenn mikla áherslu á, að kaupfélagið hefði til sölu þær vélar, sem bændur vildu kaupa. Árið 1936 var samþykkt tillaga um, að kaupfélagið keypti heyvinnuvélar á lager og seldi með afborgunarskilmálum. Árið 1943

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.