Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 50

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 50
48 GLOÐAFEYKIR reist á kristilegum grunni, enda reyndust þau systkini góðir og nýtir þegnar. Snemma var þeim haldið til vinnu, fór og saman hjá þeim öllum mikil verklagni og frábær dugnaður. Arið 1935 kvæntist Steinþór Margréti Jóhannesdóttur, síðast bónda í Grundarkoti í Blönduhlíð, Bjarnasonar, og konu hans Bjargar Sigfúsdóttur bónda í Hringey, sjá Glóðaf. 13, bls. 65. Lifir Margrét mann sinn, en hefur árum saman verið sjúklingur, fyrst lengi í heimahúsum, þar sem eiginmaður hennar annaðist hana af þvílíkri umhyggju og alúð, að framar verður naumast farið og síðan á sjúkrahúsi. Sjálfur missti Steinþór heilsuna um það bil ári fyrir andlát sitt og lá lengstum á sjúkrahúsi, oft sárþjáður. Þau Steinþór og Margrét hófu búskap á Þverá og bjuggu þar á hálfri jörðinni meðan honum entist þróttur og heilsa. Steinþór var góður bóndi, reisti íbúðarhús og peningshús með aðstoð sona sinna, ræktaði mikið land og ræktaði vel, breytti melum og mýrum í gróin tún. Stórbú hafði hann eigi, en nytjagott í besta lagi, fjármaður ágætur, búhirðumaður og þrifnaðarbóndi. Léku honum öll verk í hendi, úti jafnt sem innanbæjar. Steinþór var laginn hestamaður og stundaði nokkuð tamningar framan af árum. Hann fór vel að ungviðum og því var honum lagið að ná fram því besta, er með þeim bjó. Hann var sérlega nærfærinn við skepnur og nutu margir góðs af. Þau hjón eignuðust 8 börn og eru öll á lífi: Stefán Valdimar, verkamaður til heimilis á Þverá, Jóhannes, starfsmaður hjá Hitaveitu Reykjavíkur, Björgvin, skipasmiður í Hafnarfirði, Hjörtína Ingibjörg, húsfreyja á Sauðárkróki, Gunnar, sjómaður á Akureyri, Magnús Ingi, bóndi á Þverá, Steinþór Valdimar, verkamaður, á Sauðárkróki og Guðrún Björg, húsfreyja á Akureyri. Steinþór á Þverá var góður meðalmaður á hæð, grannvaxinn og grannholda, hvatlegur í hreyfingum en eigi æðigjarn. Hann var fölleitur, dökkhærður, bláeygur, fríður maður hvar sem á var litið; þrifnaður og snyrtimennska var honum í blóð borin. Hann varstilltur maður, hugrór og æðrulaus, þótt í fangið blési og eigi lítið, þar sem var langvinnur heilsubrestur eiginkonunnar en börnin mörg, sem annast Steinþór Stefánsson

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.