Glóðafeykir - 01.04.1989, Qupperneq 56

Glóðafeykir - 01.04.1989, Qupperneq 56
54 GLÓÐAFEYKIR Þórustöðum í Kaupangssveit, Hálfdánarsonar. Voru bæði þau hjón eyfirsk að ætterni. Þau munu hafa verið síðustu búendur í Reykjaseli, fluttu þaðan árið 1905. Þau Sigfús og Bergþóra giftust árið 1916, voru fyrst á Hólum um hríð, bjuggu á Stafnshóli í Deildardal 1921-1922, fluttu þá til Sauðárkróks og stóð þar heimili þeirra æ síðan. Börn þeirra eru þrjú: Friðþjófur, ekkjumaður, búfastur í Sandgerði, Sverrir. búsettur í Reykjavík og Aslaug, húsfreyja á Sauðárkróki. Bergþóra lífir mann sinn. Eftir að til Sauðárkróks kom var Sigfús ökumaður um margra ára skeið, átti hest og vagn og flutti fyrir bæjarbúa hvaðeina, er flytja þurfti: áburð og eldivið, hey, byggingarefni o.s.frv. En atvinnan var stopul, launin lág og lífið eigi alltaf dans á rósum að ýmsu leyti ólíkt því, sem nú gerist á tímum ofgnóttar-óánægju. Með dugnaði og eljusemi og nýtingu hvers tækifæris, sem gafst, tókst Sigfúsi að koma undir sig fótum. Þegar bílaöld rann upp var hestur og vagn dæmdur úr leik. Um þær mundir fékk Sigfús vinnu hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. Um 30 ára skeið var hann m.a. verkstjóri í gæruhúsi K.S. og sá um gærubindingu. Um störf hans þar segir sá, er vel mátti vita: „Hvalreki þótti það strákum að vera í nánd við hann, vinna með honum eða undir hans verkstjórn. Andrúmsloftið kringum hann var einlægt þrungið glaðværð og gáska í hófi. Ég held líka að hann hafi verið einn af þessum köllum sem hafa vinnuna að ástríðu, því að verk sín vann hann ekki aðeins glaður, heldur hamingjusamur líka. Þetta varð til þess að glaðbeittir strákar sóttu í félagsskap hans, og sjálfum hafa honum örugglega leiðst dauðyfli. Samt hélt hann allra manna fastast að verki og leit ekki upp”. Við þessa lýsingu á skaphöfn og geðfari Sigfúsar er því einu að bæta, að hann var ekki aðeins vinsæll meðal stráka —unglingsdrengja, hann var vinsæll af öllum, er af honum höfðu kynni, enda fylgdi honum ávallt glaðværð og hlýja. Geðríkur var hann að eðlisfari og bráðlyndur nokkuð, en alltaf jafn fljótur til sátta. Sigfús Björnsson var meðalmaður á vöxt og vel á fót kominn, andlitsfríður, gráeygur, dökkhærður. Hann var ötull maður og eigi kvartsár, mælti fátt um eigin hag, en hafði gaman af að ræða almenn og opinber mál við vini og kunningja; gat verið glettinn á svip og kíminn í orðum, en ávallt hlýr. Með honum þótti flestum gott að vera.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.