Glóðafeykir - 01.04.1989, Page 64

Glóðafeykir - 01.04.1989, Page 64
62 GLÓÐAFEYKIR trésmíðaverkstæði Kaupfélags Skagfirðinga. Að smíðanámi á Akureyri loknu hvarf Þórður fyrst til Siglufjarðar. Þar kvæntist hann Þórunni Ólafsdóttur. Börn þeirra erufimm: Bjorn, Sigríður Ólöf, Davíð, Jóhannes og Þuríður Nanna. Þórður og Ólöf slitu samvistum. Nokkru síðar kynntist hann Stefaníu Þorláksdóttur bónda í Litlu-Brekku á Höfðaströnd, Þorleifssonar síðar bónda á Óslandi og í Stóru-Brekku, Magnússonar, og konu Þorláks Margrétar Stefánsdóttur bónda á Austara-Hóli í Flókadal, Finnssonar, en kona Stefáns og móðir Margrétar var Guðrún Baldvinsdóttir. Þau hófu sambúð. tluttu til Sauðárkróks 1931 og bjuggu þar alla stund síðan. Dóttir þeirra er Anna Pálína. Áður hafði Stefanía eignast tvær dætur: Svanlaugu og Elínborgu, og gekk Þórður þeim að öllu í föðurstað. Eigi verður sagt að lífið færi alltaf mjúkum höndurn um Þórð Jóhannesson. Þómátti svo kalla, að ævi hans öll væri óður til lífsins og gleðinnar. samfelldur fagnaðaróður. Gleðin, hin sanna, falslausa og hreina gleði. sem býr í hjartanu, var honum tryggur förunautur. Hann bar það með sér, hvar sem hann fór, að hann var sáttur við Guð og menn, heill í lífsfögnuði sínum, ljúfur og glaður með gamanyrði á vör, fágætlega tært og opið heiði yfir svipfari hans öllu. Örlögin ortu úr ævi hans og hæfileikum einstaka skapgerð og minnisverðan mann, frábæran heimilisföður, sem flestum betur færði sönnur á orð sr. Hallgríms:,, ..hver sem sér lynda lætur, það lánar Drottinn mætur, sá hefur allsnægta nóg”. Þórður var einn af stofnendum Iðnaðarmannafélags Sauðárkróks og kjörinn heiðursfélagi þess 1972. Þórður Jóhannesson var rösklega meðalmaður vexti. herðabreiður og beinn í baki, þreklegur og þvkkur undir hönd, gjörvulegur á velli og karlmenni. Hann var svipmikill, Ijóshærður, gráeygur og glettnisglampi einatt í auga. Hann var greindur vel, hagmæltur. ljóðelskur. Hann var einlægur trúmaður, gæddur hið innra með sjálfum sér trúarfögnuði, sem var í fullu samræmi við eðli hans allt. Þórður Jóhannesson

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.