Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 70

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 70
68 GLOÐAFEYKIR bóndi og vildi í hvívetna sjá fótum sínum forráð. Árið 1918 gekk Haraldur að eiga Ingibjörgu Bjarnadóttur (Hesta- Bjarna) frá Reykjum í Hjaltadal, Jóhannessonar, og konu hans Þórunnar Sigfúsdóttur bónda í Eyhildarholti o. v., Péturssonar. og fyrri konu Sigfúsar Ingibjargar Sigurðardóttur í Ási í Hegranesi, systur Olafs alþingismanns í Ási. Var Ingibjörg á Völlum alsystir Herdísar á Veðramóti, sjá Glóðaf. 22, bls. 72. Þau Haraldur og Ingibjörg eignuðust 4 börn: Jónas, hreppstjóra og bónda á Völlum, Friðrik, dó tveggja ára gamall, Þórunni. kennara, lést 1958 og Jóhannes, veghefilsstjóra og bónda á Sólvöllum, nýbýli frá Völlum. Haraldur missti konu sína á hásumri (2. júlí) 1975. Haraldur á Völlum gegndi fjölda trúnaðarstarfa, enda trúleiksmaður einstakur, nákvæmur og skyldurækinn í hverju starfi og um alla hluti þess háttar maður, að óhugsandi var að hann níddist á nokkru því, er honum var til trúað. Hann satí hreppsnefnd 1925-1970 og oddviti frá 1935. Hreppstjóri Seyluhrepps 1943-1970 og sýslunefndarmaður 1936-1970. Átti sæti í skólanefnd nálega 30 ár og lengstum formaður. I stjórn Búnaðarfélags Seyluhrepps 1928-1945. Sat lengi í sóknarnefnd Víðimýrarsöfnuðar og meðhjálpari um hríð. Hann var um árabil fjallskilastjóri í framhluta Seyluhrepps og gangnaforingi miðflokks á Eyvindarstaðaheiði. Haraldur var í yfirskattanefnd Skagafjarðarsýslu 1938-1943, endurskoðandi sýslu- og sveitarsjóðsreikninga um árabil, í stjórn Héraðssamlags um hríð og umboðsmaður Brunabótafélags íslands, símstöðvarstjóri fjölda ára, áður en símastöðin á Völlum var flutt til Varmahlíðar. Á yngri árurn sinnti hann málefnum ungmennafélaganna. bæði þar heima fyrir í Seyluhreppi og var auk þess um skeið formaður Ungmennasambands Skagafjarðar. Hann var á sinum tíma einlægur stuðningsmaður þess, að stofnaður væri alþýðuskóli í Varmahlíð. en það var mikið baráttumál skagfirskra hugsjónamanna. Við alþingiskosningarnar 1942 skipaði Haraldur 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Skagafjarðarsýslu, sat á Alþingi um stund en leiddist þingsetan, enda óvenju heimakær maður og fágætlega traustum böndum tengdur heimili sínu, enda þótt eigi kæmist hjá að vera oft að heiman um stundarsakir vegna opinberra starfa. Hann var að eðlisfari rótgróinn íhaldsmaður, einkum á vissum sviðum. svo að sumum þótti nóg um og meir en það. En íhaldssemi hans var að verulegu leyti góðrar ættar, runnin að miklu af þjóðlegri rót. Hann skorti víðsýni frekar en skilning, framfarahug og framkvæmdavilja

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.