Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 77

Glóðafeykir - 01.04.1989, Side 77
GLÓÐAFEYKIR 75 Grund í Reykjavík uns yfir lauk. Mun honum, gömlum bónda og rótföstum Skagfirðingi, löngum hafa fundist sem væri hann gestur þar syðra þessi árin. Árið 1915, hinn 9. apríl, kvæntist Bessi Elínborgu Björnsdóttur prófasts á Miklabæ í Blönduhlíð, Jónssonar hreppstjóra og bónda í Kollafirði á Ströndum vestur, Magnússonar bónda í Steinadal, Illugasonar, og konu Björns Guðfinnu Jensdóttur bónda á Veðrará í Önundarfirði, Jónssonar bónda í Hjarðardal, Guðlaugssonar, og konu Jens Sigríðar Jónatansdóttur á Vöðlum, Jónssonar. Var Elínborg kennari í Viðvíkurhreppi. Hún var mikil fríðleikskona og úrvalsmanneskja, sem þau Miklabæjarsystkini öll. Elínborg lést 18. mars 1942 mjög um aldur fram. Börn þeirra hjóna eru 4: Björn, endurskoðandi hjá K.E.A. á Akureyri, Margrét, húsfreyja í Reykjavík, ekkja eftir Daníel Feldsteð lækni, Gísli, áður bóndi í Kýrholti, nú starfsmaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, Sauðárkróki og Haraldur, prófessor við Manitobaháskóla í Winnipeg. Nokkru eftir að Bessi missti konu sína kom til hans sem bústýra Guðný Jónsdóttir, ættuð vestan af Skagaströnd, mikil dugnaðar- og myndarkona. Stjórnaði hún öllu innan stokks með skörungsskap og prýði, svo að allt hélst í sama horfi og áður. Guðný lést 25. júní 1966. Hún ól Bessa tvær dætur og báru báðar nafn Elínborgar konu hans. Dó hin eldri þeirra aðeins ársgömul, en sú yngri er Elínborg húsfreyja í Hofstaðaseli, gift Vésteini bónda þar, Vésteinssyni. Þá ólst og upp í Kýrholti sonur Guðnýjar, er hún hafði áður átt, Gunnar Haraldsson, deildarstjóri hjá Kaupfélagi Skagfirðinga. I Kýrholti var og annað bam Guðnýjar, Fríða Ólafsdóttir, húsfreyja í Súðavík. Bessi Gíslason naut mikils trausts samferðamanna. Því var eigi kyn þótt á hann hlæðust margvísleg trúnaðarstörf. Hann var hreppstjóri 1934-1961 og um leið formaður skattanefndar; rækti hann það starf sem önnur af stakri skyldurækni og jafnvel ekki trútt um að sumum þætti sem hann gengi óþarflega ríkt eftir því, að rétt væri talið fram til skatts. Bessi sat í hreppsnefnd Viðvíkurhrepps 1922-1934 og oddviti 1925-1931. Sýslunefndarmaður 1954-1970; yfirúttektarmaður í Skagafjarðarsýslu, varamaður í jarðamatsnefnd sýslunnar; sat um hríð í stjórn Varmahlíðarfélagsins. Hann var símstöðvarstjóri og bréfhirðingarmaður, umboðsmaður Brunabótafélags Islands og einnig Samvinnutrvgginga. Var í sóknarnefnd og safnaðarfulltrúi um sinn. Átti sæti í Búnaðarráði meðan sú stofnun var við lýði. Þá eru ótalin þau trúnaðarstörf, sem tvímælalaust voru Bessa hugfólgnust.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.