Skírnir - 01.09.1993, Page 23
SKÍRNIR PARADÍSAR MISSIR JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR
325
bundnu munstri bæði í vali á fylgdarmanni og lýsingu á hand-
leiðslu hans. I þessu óvenjulega fráviki Miltons er eftirtektarverð
samsvörun milli Grasaferðar og Paradísar missis.
Paradísarför Adams er sett fram sem endurminning. I 8. bók
er Adam sjálfur látinn lýsa því er hann nýskapaður féll í svefn og
Drottinn kom til hans (í mynd) og bað hann rísa upp og sagðist
vera kominn til að flytja hann „í fagran garð, / inní aldingarð / un-
unarfullan, / bygðan handa þér / til að búa þar“.13 Og Adam reis
upp og Guð tók hann við hönd sér og leiddi hann upp fjallið inn í
Paradís.
I 1. Mósebók 2:15 segir: „Þá tók Jahve Guð manninn og setti
hann í aldingarðinn Eden, til að yrkja hann og gæta hans.“ Milton
mun einnig hafa haft til hliðsjónar apokrýfa ritið 2. Esra 3:6, sem
í enskri útgáfu hljóðar svo: „And thou leddest him into paradise,
which thy right hand had planted." („Og þú leiddir hann inn í
Paradís sem hægri hönd þín hafði gróðursett“).14
I apokrýfa ritinu er notað orðið leddest (2. p. þát. af nh. lead)
eins og víða í opinberunum og sýnum og verður ekki fullyrt
hvort átt er við að Guð hafi leitt Adam við hönd sér eða einungis
vísað veg og stýrt för, en Milton útfærir þessa mynd bókstaflega
er hann lætur Guð leiða Adam við hönd sér upp fjall til Paradísar.
A frummálinu er myndin af þessu ferðalagi skýr:
So saying, by the hand he took me rais'd,
And over fields and Waters, as in Air
Smooth sliding without step, last led me up
A woody Mountain; whose high top was plain,
(JM 8. bók l. 300-303)
13 Ens enska skálds, J. Miltons, Paradísar missir. Á íslenzku snúinn af þjóðskáldi
íslendinga, Jóni Þorlákssyni. Kaupmannahöfn 1828, 8. bók, bls. 228. Eftirleið-
is verður vísað í þessa útgáfu með upphafsstöfum Jóns Þorlákssonar ásamt
bók og blaðsíðutali í sviga fyrir aftan hverja tilvitnun í meginmáli.
14 John Milton. Paradise Lost. Ritstj. Merritt Y. Hughes. New York 1935, bls.
239, neðanmáls. Framvegis verður vitnað til þessarar útgáfu með upphafsstöf-
um Johns Miltons ásamt bók og línutali í sviga fyrir aftan tilvitnanir í megin-
máli.