Skírnir - 01.09.1997, Blaðsíða 38
312
BILL HOLM
SKÍRNIR
Musterisklukkan þagnar
- en ómurinn berst áfram
úr klukkum blómanna
Jafnvel Minneota blómstrar ...
13. Lokaþáttur: hin litla og lágvœra rödd Minneota
Hingað erum við þá komin eftir langt og krókótt ferðalag. Les-
andinn þarf ef til vill að taka á „velvild" sinni og minnast þess að
menningin öll, kannski jafnvel öll hin vestræna siðmenning, er
mótfallin niðurstöðunni. Enskan afneitar henni jafnvel, svo að
maður neyðist til að reyna að þvinga orðin til að merkja annað en
þau eru vön að gera. En samt sem áður, þá veit ég að þetta er satt.
Hvernig get ég sannað það? Með lífi Pauline Bardal og fjölskyldu
hennar, fátækri smáþjóð á jaðri heimskautsins, hálfri tylft bóka,
reynslunni, dálítilli hljómlist, og loks með tilfinningunni einni
saman ... ekki er það mikið. En auðnuleysishljómkviðan ómar án
afláts í hverri einustu slagæð líkama míns og þíns. Mér heyrist
hún hljóma eins og Bach, en þú verður sjálfur að ákveða hvernig
þér finnst hún vera.
Ef þú skyldir ekki heyra hana þar sem þú ert núna, langar mig
að minna þig á að hún ómar á hverjum degi í Minneota í
Minnesota, undir vatnsgeyminum og langt inni í korngeymsl-
unni. Þú þarft ekki að kaupa þér far með rútunni til að komast
þangað, því þú ert þar nú þegar, hvar svo sem þú ert. Þú þarft
einungis að ákveða að vera þar, og þá ertu þar.
Mundu samt alltaf, að staðurinn er raunverulegur að öllu
leyti, þótt hann sé kannski ekki merkilegur í bandarískum skiln-
ingi. Þótt þar sé allt hið sama að finna og á öðrum stöðum, eins
og jörð, vatn, himin og veður, þá mun hann aldrei komast í sjón-
varpið. Þar eru líka píanó, klarinett og lög, jafnvel þótt fiðlurnar
kunni að vanta, og vindurinn sem berst þangað kemur frá Prag,
Nairóbí og Auckland, og ber með sér eitthvað frá þeim stöðum,
sem sest þar að. Ibúarnir eru oft leiðinlegir en koma stundum á
óvart, líkt og annars staðar, og endalaus samtölin um veðrið
höfðu eitt sinn ljóðrænan keim. Hér bjuggu Bardalirnir, og gera í
vissum skilningi enn, undir steinum með nöfnunum þeirra, en