Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1990, Síða 23
Trúarlíf íslendinga
ásamt tilkomu fjölhyggjunnar sem ýtir undir sjálfdæmishyggju og einnig
afstæðishyggju, eðli sínu samkvæmt.
Þótt leita megi skýringa á þeim mun á kynslóðunum, sem hér er til umræðu,
í ljósi almennra viðhorfa til siðferðis og gildismats þá er ekki þar með sagt að
skýringa sé ekki einnig að leita á vettvangi trúarlegra viðhorfa. Eins og fyrr segir
er enginn munur á hinum elstu og yngstu í afstöðu til Jesú sem frelsara og guðs
sonar né heldur er nokkur marktækur munur á viðhorfum til staðhæfingar-
innar um Jesú sem trúarbragðaleiðtoga. En um tvo gjörólíka hópa er að ræða
þegar spurt er um siðferðilegt gildi eða mikilvægi Jesú. - Eru hér þá ólík trúar-
leg viðhorf að baki? Hér skal því varpað fram að svo sé. Þegar elsta kynslóðin
var ung og fékk sína trúarlegu mótun, m.a. í fermingarfræðslu kirkjunnar, lét
sú guðfræðistefna talsvert mikið að sér kveða sem einmitt hélt mjög á loft
siðferðilegum dráttum í mynd Jesú, í samræmi við þá grundvallarkenningu að
kristna trú bæri fyrst og fremst að túlka siðferðilega. Oft, en þó alls ekki alltaf,
fylgdu þessari túlkun efasemdir um persónu Jesú, ef ekki höfnun á guðdómi
hans. Er hér um að ræða þá stefnu í guðfræði sem ýmist hefur verið nefnd
nýguðfræði eða frjálslynd guðfræði.
Svo er að sjá sem þessar guðfræðilegu áherslur komi greinilega fram í
afstöðu elstu kynslóðarinnar til Jesú. Skýra þær ekki einungis það fylgi, sem hin
siðferðilega staðhæfing nýtur, heldur einnig að sú fullyrðing að hann sé sonur
guðs fái ekki meiri hljómgrunn meðal þessarar kynslóðar en raun ber vitni.
Þótt rúmlega 44% svörun sé umtalsverð stingur hún samt í stúf við önnur svör
elstu kynslóðarinnar sem jafnaðarlega eru langt umfram meðaltal þegar um
fylgi við kristnar trúarhugmyndir er að ræða.
Þyki þetta dræmar undirtektir má með sanni segja hið gagnstæða um við-
brögð yngstu kynslóðarinnar. Með hliðsjón af öðrum svörum hennar, t.d. um
trú á guð, hefði mátt ætla að talsvert lægra fylgi kæmi í ljós við þá fullyrðingu
að Jesús sé sonur guðs. Má vera að hér megi greina að baki aðrar áherslur í
kenningu kirkjunnar, t.d. í fermingarfræðslu, en þær sem nýguðfræðin hélt á
loft, af þeim toga er árétta guðdóm Jesú. En hér kemur vafalítið fleira til
greina. Talsvert hefur borið á því að reynt sé að finna Jesú stað í ungmenna-
menningunni, sbr.Jesú-hreyfinguna, söngleikinnjesus Christ Superstar, popp-
söngva þar sem lögð er áhersla ájesú og margt fleira sem undirstrikar sérstöðu
hans.
Unga kynslóðin virðist eiga auðveldara með að fmna samsemd meðjesú en
guði.
Hér á eftir verður fjallað um trúarafstöðu manna á grundvelli sérstakrar
spurningar þar að lútandi. Þar skiptist allur þorri svarenda í tvo hópa, þ.e. þá
sem segjast vera trúaðir á sinn eigin persónulega hátt, 42%, og segjast vera
trúaðir og játa kristna trú, 32% (sjá töflu 11,15). Þessir tveir hópar eru mjög
ólíkir í afstöðu til Jesú sem sonar guðs og frelsara mannanna. I fyrri hópnum
eru það 31.3% sem nrerkja við þá staðhæfingu en 72% í hinum síðari. Þessi
niðurstaða - fyrir utan það að hún sýnir mjög mikla fylgni á milli trúar ájesú
21