Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 40

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 40
Bjöm Magnússon heldur svo að skilja, að öll þau atriði, sem hér voru nefnd, væru áður óþekkt með öllu. Hugmyndina um hinn nálæga Guð mátti finna í boðskap spámannanna, sem fundu kraft hans knýja sig til að bera honum vitni. Föðurheitið var ekki heldur óþekkt um Guð, þótt það hefði sjaldan þann nána, persónulega blæ, sem það fékk hjá Jesú. Og eingyðistrúin var orðin rótfest meðal Gyðinga. En þetta varð allt nýtt hjá honum. Hann fann á alveg óvenjulegan hátt dl nálægðar Guðs. Hann veit sig standa í sérstak- lega nánu sambandi við föðurinn. Og enda þótt honum sé ljós sérstaða sín í þessu efni, þá telur hann alla eiga beinan aðgang að himneska föðurnum með bænir sínar. Og Guð hugsar um þá alla („veit, að þér þarfnist alls þessa”, Mt. 6,32). Hann talar um mennina sem syni Guðs. í því felst „nálægð Guðs í siðferðilegri og andlegri reynslu þeirra ” (Moffatt, bls. 97). Þá er föðurhugtakið sérstaklega ríkt að innihaldi í boðskap Jesú. „Nýr var boðskapur hans um föðureðli Guðs: ekki föðurnafnið um Guð og ekki þekking siðlegra eiginleika Guðs yfirleitt, heldur það, að hann leit á föðurelskuna sem ríkjandi eiginleika í eðli Guðs, og sú vissa, að vegna þessarar elsku giltu ekki réttarfarsreglur í samskiptum Guðs og manna, heldur siðgæðisreglur, eins og í viðskiptum foreldra og barna (Wendt, bls. 285). „Jesús heldur hugmyndinni um föðurinn og dýpkar hana um leið, um Guð sem föður ekki aðeins þjóðfélagsins, heldur líka einstak- lingsins, og einstaklingsins sem manns en ekki aðeins hins einstaka Israelsmanns. Hann er hinn konunglegi faðir mannanna, ekki af því að hann skapaði þá, né heldur af því að hann drottnar yfir þeim, heldur vegna þess, að þeir standa í siðferðilegu skyldleika sambandi við hann og eru honum háðir” (Moffatt, bls. 101). Jesús heldur að sjálfsögðu, jafnframt þessum nýju þáttum í guðsmynd hans, þeim sígildu atriðum, sem fólust í guðstrú þjóðar hans. Meðal þeirra var trúin á hinn eina, heilaga Guð. Þessa gætir að vísu ekki eins mikið í kenningu hans eins og hins, sem nýtt er, og er það eðlilegt. „Hans var að kenna og boða það, sem ekki lá í augum uppi, heldur var hans eigin uppgötvun og opinberun, um að einmitt þessi hinn heilagi væri himneskur faðir” (Otto, bls. 111). Heilagleikinn „das ganz anders sein”, hinar ströngu siðgæðiskröfur, refsidómur þess, „sem hefur vald til að kasta í helvíti” (Lk.12,5), það var allt kunnugt þjóð hans. Um það gilti einnig, að hann var ekki kominn til að niðurbrjóta, heldur til að uppfylla. Og hið nýja, sem hann fyllti upp í þessa gömlu mynd með, var innihald föðurhugtaksins. Og það innihald má birta með einu orði: kærleikur. Kærleikur Guðs er hinn stjórnandi eiginleiki hans. Hið „nýja réttlæti”, eins og það birtist hjá Guði, er „gæska, sem er ofar réttlætinu” (Weinel, Theologie, bls. 137, sbr. Mt. 20, 1-15). Kærleikur hans er algjör, því hann nær jafnt til allra, án greinarmunar (Mt. 5,45-48). Hann fyrirgefur, því að það er eðli hans. Hann er reiðubúinn til að taka á móti glataða syninum; faðirinn bíður eftir honum og hleypur á móti honum, þegar hann sér hann álengdar. Og ef vér förum að dæmi kristinna manna á öllum öldum, og lítum svo á, að í lífi Krists hafi dýpsta eðli Guðs birst 38
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.