Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 51

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 51
Sérkenni kristindómsins birtast” (Macnicol bls. 30,32). En öll algyðistrú strandar á því, að hún getur ekki gert aðra grein fyrir hinu illa, en að einnig það sé einn háttur guðdómsins. Mismunur ills og góðs er þá upphafinn, og siðferðishvöt einstaklingsins lömuð. Slíkt getur ekki samrýmst hugmynd kristindómsins um hinn kærleiksríka og heilaga Guð, né heldur hinni dýpstu trúarreynslu mannkynsins. Þótt merkilegt megi virðast, verður afstaða hinnar ströngustu eingyðistrúar, íslam, til heimsins, svipuð afstöðu algyðis- trúarinnar, Kóraninn segir, að „allt er að færast nema andlit (veruleiki) Allah”. R.A. Nicholson finnur í þessari setningu og öðrum svipuðum upphafið að algyðistrú Súfistanna (með þeirri niðurstöðu sinni, sem er alveg í anda Advait-Brahmatrúarinnar, að Allah sé hin eina raunverulega vera, hin sanna sjálf, sem hægt er að ná með því að missa sjálfsmeðvitund sína” (Macnicol bls. 33). Hin vísindalega einhyggja hefur náð allmikilli útbreiðslu á síðustu áratugum, eftir því sem náttúrufræðileg þekking manna óx, og siglt í kjölfar þróunarkenningarinnar. Aðalfrömuður hennar var Háckel. í ritum sínum (sérstaklega Die Weltratsel, 1899) skýrir hann alla hluti sem til orðna fyrir þróun frá hinu einfalda til hins margbrotna, og þannig sé allt runnið frá einni frumorsök eftir eðlilegum þróunarleiðum. Þetta er í raun og veru ekki annað en algyðistrú sett í form náttúruvísindanna, enda viðurkennir Háckel að svo sé (Riddle, 237). Þannig gilda því sömu rök gegn báðum. En auk þess fellur einhyggjan um sjálfa sig á því sviði, sem hún hefur kosið sér, því hún gerir enga fullnægjandi líffræðilega grein fyrir því hvernig æðri tegundir þróast upp af hinum lægri, og því síður, hvernig skynsemi og sálarlíf vaknar af hinu dauða efni. Hún hefur þannig alls ekki gert Guð óþarfan sem hinn skapandi kraft, og því síður hefur henni tekist að veita neitt í staðinn fyrir hinn kærleiksríka föður Jesú. Og enn má bæta því við, að grundvöllur hennar, breytiþróunarkenningin, er ekki lengur talin góð vísindi í þeirri mynd sem Darwin setti hana fram og Háckel byggði á henni. Og raunar skýtur sú viðleitni, að skýra heimsskoðum kristindómsins út, frá niðurstöðum efnisvísindanna, fram hjá marki. „Kristindómurinn er ekki trú, sem hefur á takteinum augljósar skýringar á öllu sem gerist. Hann neitar þvert á móti að gera aðra tilraun til að gefa skynsamlega, samræma skýringu á heiminum, eða m.ö.o. að reyna að fella guðstrúna inn í hugsanakerfi einhyggjunnar, þar sem ekki væri um neina ráðgátur að ræða” (Aulén, 188). Kristindómurinn fer meðalveg milli tvíhyggju og einhyggju. Hann telur heiminn hvorki gjörsamlega fjandsamlegan Guði, né heldur gjörir hann einn úr báðum. Heimurinn er Guðs verk, framkvæmd vilja hans og verksvið vilja hans. En Guð er honum óendanlega miklu æðri. Ekkert í heiminum er utan Guðs, en Guð er óendanlega meira en heimurinn. Hann hefur skapað heiminn af engu (ex nihilo). Það táknar það, að ekkert er það utan Guðs, sem sé orsök hans. Alnálægð hans er alræði kærleika hans. „Þar sem kærleikur Guðs verkar, þar er Guð, — jafnvel þótt varir 4 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.