Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 54

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 54
Bjöm Magnússon líðandi stund, og siðgæðiskröfur hans verða engan veginn skiljanlegri né eðlilegri, sé litið á þær sem bráðabirgðasiðaboð (interims-etik). Um hitt er aftur ekki neinum blöðum að fletta, að frumkristnin lifði í sterkri eftirvæntingu eftir heimsslitum og endurkomu Krists, eins og fyrr hefur verið bent á. Það sést glöggt hjá Páli, í almennu bréfunum og Opinberunarbókinni. En sú trú kulnaði, eftir því, sem lengra leið fram. Meðan kirkjan átti við ofsóknir að búa, hélst þó enn við nokkuð af hinni gömlu trú á bráða lausn frá hinni „yfirstandandi vondu öld”, en eftir að kirkjan varð ríkiskirkja, snúast vonirnar meira og meira að fullkomnun sælunnar í öðru lífi. En þó hefur alltaf haldist við innan ýmissa flokka vonin um nálæg heimsslit og endurkomu Krists, og alltaf blossað upp með meira krafti, þegar eitthvað hefur þrengt að þjóðunum (Aðventistar o.fl). Gagnstætt þeirri skoðun, sem kemur fram í heimsslitavonunum, að þessi heimur sé illur og ekki hæfur vettvangur guðsríkis, hefur jafnan verið uppi í kristninni önnur skoðun, að heimurinn væri, þrátt fyrir ófullkomleika sinn, það svið, þar sem Guð framkvæmdi vilja sinn og stofnsetti ríki sitt. Dæmisögur Jesú um guðsríkið benda í þá átt. Hann líkir því við sáðkorn, sem grær og vex, við súrdeig, sem sýrir allt deigið. í niðurlagi Matteusarguðspjalls er skipunin um að gera allar þjóðir að lærisveinum, og í þeim anda hefur jafnan verið starfað síðan að útbreiðslu kristninnar. Jesús var ekki heldur neinn heimsflóttamaður. Hann gerir grein fyrir muninum á sér og Jóhannesi skírara: „Jóhannes kom, og át hvorki né drakk”. „Mannssonurinn kom, át og drakk, og menn segja: Sjá átvagl og vínsvelgur” (Mt. 11.18n). Hann hefur opin augu fyrir fegurð náttúrunnar. Siðbótarmennirnir sáu þetta einnig. Þeir afnema hið tvöfalda siðgæði kaþólsku kirkjunnar, þar sem það var talið æðra siðgæði, að halda sig frá heiminum (klausturheit, ókvæni presta), og sérstaklega hefur endurbætta kirkjan lagt ríka áherslu á helgi vinnunnar og hinnar veraldlegu starfa. Á síðustu tímum má sjá merki um hið sama hjá hinum japanska afreksmanni Kagawa (Axling, 38,150). En jafnframt því, að viðkenna, að þessi heimur, sem vér lifum nú í, sé svið guðlegs tilgangs þá hefur kristindómurinn jafnan haft opin augun fyrir fallvaltleik hinna veraldlegu gæða, og séð uppfyllingu framtíðarvona sinna rætast fyrst í öðrum heimi. Jesús brýnir fyrir mönnum fallvaltleik auðæfanna, (Lk. 12,16nn, Mk. 4,19; 10,23nn), og hvetur þá til að safna sér auðæfum á himni (Mt. 6,19;) og nota sér mammon ranglætisins til að gera sér vini með í eilífa lífinu (Lk. 16,9). Heimurinn, hinn efnislegi, er þannig ekki takmark i sjálfum sér, heldur eitt stig á leiðinni að takmarkinu. „Heimurinn hefur tilgang sinn í kærleika Guðs, sem stefnir að því að gera guðsríkið að veruleika. Heimurinn er tæki að ná þessu marki, ekkert nema tæki, en líka sem tæki raunverulega nauðsynlegur” (Háring, Dogm, bls. 363). Heimurinn er takmarkaður og endanlegur, en guðsríkið eilíft og ótakmarkað. En hinn 52
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.