Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Síða 77

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Síða 77
Sérkenni kristindómsins að svo var litið á, að hinir kristnu gætu ekki syndgað, er þeir hefðu einu sinni snúið sér (I. Jóh. 3,6,9; Hebr. 6,lnn, sbr. Ró. 6,6nn; 8,ln. en aftur Fil. 2,12n). 1 Jóhannesar ritunum kemur metanoia og metanoein aldrei fyrir. Hins vegar er það eðlilegt, að á þeim tímum, þegar heittrúaröldur ganga yfir, sem leggja ríka áherslu á afstöðu einstaklingsins gangvart Guði, þá er lögð rík áhersla á iðrun og afturhvarf (conversio) og ekki verið eins metin að verðleikum hin hægfara stöðuga þróun, sem í flestum tilfellum er hin eðlilega, að menn iðrist stöðugt og vaxandi, finni alltaf þörfina að berjast gegn hinu lægra eðli sínu og láta hið góða fá yfirhöndina. Rétt mun vera að minnast á í þessu sambandi yfirbóta- og skriftakerfi kaþólsku kirkjunnar, þótt það reyndar fræðilega séð eigi lítið skylt við iðrun frá kristilegur sjónarmiði. Því þar yfirgnæfir alveg hið lagalega viðhorf í afstöðu Guðs og manns, og allt leyst á lagalegum og jafnvel viðskiptalegum grundvelli. Móti þessu reis Lúther, og lagði áherslu á persónulega afstöðu mannsins til Guðs, og vakti þannig upp kröfu Jesú um iðrun. En hann staðnæmdist þó við kenningu Páls um réttlætinguna, og fyrir það sótti aftur í sama horfið í hinni orthodoxu Lútherstrú. Með pietismanum vaknar á ný aukin áhersla á iðrun og afturhvarf, í heittrúarformi, en í endurbættu kirkjunni í strangtrúarformi hjá púrítönum. Iðrunin er eins og áður er að vikið, grundvallaratriði í þeirri trú, sem byggir á persónulegum samskiptum Guðs og manns. Hún er því ekki sérstök fyrir kristnidóminn, en hins vegar er hún ómissandi einkenni þess kristinsdóms, sem vill byggja á hinu nána sambandi Guðs og manns, sem Jesús boðaði. Með tilfinningu þeirri fyrir óverðugleik manns, veikleika hans og smæð gagnvart Guði (schlechtinnige Abhángigkeit), sem í henni felst, er hún einn sterkasti þátturinn í allri sannri trúartilfinningu, og einn hinn fyrsti: Og í kristindómnum er þessi tilfinning mjög sterk. Barry segir um það: „Þannig er það að í návist Krists vita allir menn sig syndara. Þeir mega gjarna halda fram að þeir séu sér ekki meðvitandi um neina verulega rangbreytni. En hann kemur eins og sverðstunga inn að hjartarótum lífsins, og tvístrar allri sjálfsánægju vorri og værukærð; ekki aðeins til að láta oss iðrast eftir yfirsjónir vorar, heldur til að láta oss blygðast vor yfir hinu besta“ (Op. cit. bls. 189). Þá næmu syndatilfinningu vekur kristindómurinn með því að sýna manninum hina háleitustu hugsjón, og framkvæmd hennar í hinni einstæðu persónu Krists. Nú munum vér athuga það viðhorf milli Guðs og manns, sem upp af iðruninni sprettur: trúna sjálfa. b) Trú Hér að framan er rætt nokkuð um uppruna og þróun guðstrúarinnar, og verður það ekki endurtekið hér. Aftur verður gerð nokkur grein fyrir því, hvernig afstaða mannsins til Guðs hefur birst sem trú í kristin- dómnum. 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.