Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 89

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 89
Sérkenni kristindómsins sem persónulega afstöðu Guðs til mannsins. Náðin og miskunnsemin runnu saman. En þrátt fyrir það héldu siðbótarhöfundarnir við kenninguna um fyrirhugaða sælu og vansælu, sem þó hélt ekki velli í lúthersku kirkjunni, því náðin var ekki talin ómótstæðileg. Fullkominn lausn var ekki fengin á vandamálinu um náðina og viljann, endar var öll röksemdarfærslan öðrum þræði bundin við hinar kaþólsku hugmyndir um náðina. Sá grunntónn, sem heyra má í gegn um allar þessar misjöfnu tilraunir mannanna til að skýra fyrir sér, hvað væri náð Guðs og hvernig hún verkaði, er, að kærleikur Guðs er afl, sem verkar á mannlífið, án tilverknaðar mannsins eða verðskuldunar. „Að minnast á mannlega verðskuldun gagnvart Guði er að leiða inn í umræður um hið trúarlega atriði, sem er andstætt trúnni” (Aulén, 278). Vér notum þannig orðið náð Guðs til að tákna tvær hliðar hins guðlega kærleika eins og hann birtist gagnvart manninum: Að hann er óverðskuldaður af manninum, og að hann verkar að fyrra bragði, án tilverknaðar mannsins (sbr. I. Jóh. 4,19). Þetta er samhljóða reynsla allra þeirra, sem snortnir hafa orðið af anda kristindómsins. Á sumum tímum hefur verið lögð svo einhliða áhersla á þetta, að ekkert hefur verið lagt upp úr vilja eða viðleitni mannsins sjálfs. Síðasta dæmi þess er stefna Barths og fylgjenda hans. „Vér mótmælendur lítum á trúna sem það, að maðurinn tekur við og grípur náð Guðs, fyrir tilverknað sjálfrar náðarinnar, þar sem náðin er og verður náð Guðs — án þess að maðurinn, jafnvel á hinn minnsta hátt geti ráðið yfir náðinni” (Barth: Die Theologie und die Kirche, bls. 295, cit. Scharling 22). „Trú og opinberun tákna skýra neitun þess, að það sé nokkur vegur til frá manninum til náðar Guðs, kærleiks og lífs. Bæði orð láta í ljós, að hér komi aðeins til greina vegur Guðs til mannanna” (Barth: Das Wort Gotts, bls. 8, cit. Scharling 23). Sú skoðun getur ekki samrýmst kenningu Jesú um gildi mannsins og ábyrgð hvers manns á lífi sínu og velferð. Nær hinu rétta mun Páll hafa komist er hann segir: „Vinnið þér nú að sáluhjálp yðar með ugg og ótta ... því að það er Guð, sem verkar í yður bæði að vilja og að framkvæma” (Fil. 2,12n). Þannig verða mennirnir samverkamenn Guðs um sköpun þess mannfélags, sem er að vilja hans. „Guð gerir manninum kunna nærveru sína með ómótstæðilegri sannfæringu í þeirri viljaframkvæmd, að maðurinn gefur sig skilyrðislaust á vald hinu æðsta sem hann þekkir” (Brown, God, III). En einnig í hinni gömlu kenningu kirkjunnar, að náð Guðs væri fólgin í krafti, sem væri veitt inn í mannssálirnar, felst nokkur sannleiki, og fyllilega í samræmi við boðskap Jesú. Sérstaklega má benda á fyrirheitið um kraftinn frá hæðum (Lk. 29,49), enda þótt það hafi verið sett í samband við fyrirheitið um andann, og það með réttu. Því andi Guðs er einmitt hinn guðlegi kærleikskraftur starfandi í manninum. Það er sá kraftur, sem gefur manninum mátt til að sigra hið lægra eðli sitt, og fylgja fram hinu góða, sem hann vill, og stilla líf sitt í samræmi við það fegursta og besta, sem hann þekkir. En um það munum vér ræða betur, er 87
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.