Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 124

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Page 124
Bjöm Magnússon hliðst, Mt. 17,20 og hliðst). Er það harla skiljanlegt, því að hvort bindur annað, trú og bæn. Trúin sem hið innilega traust vekur bænina, og bænin sem samlíf við Guð nærir traustið, og hvort tveggja verður til að gera manninn opinn fyrir hinum ótæmandi máttarlindum hins guðlega kraftar. Og Jesús lagði ríka áherslu á það, að bænin væri í anda og sannleika, eins og það er orðað í Jóhannesarguðspjalli (4,24), þ.e.a.s, að hinn biðjandi væri einlægur í bæn sinni, legði sig allan fram í hana, væri treystandi, opinn, móttækur. Menn eiga ekki að vera eins og hræsnar- arnir, sem er ljúft að láta aðra sjá bænrækni sína og flytja langar bænir að yfirskini, heldur skulu menn ganga afsíðis og biðjast fyrir í leyndum (Mt. 6,5nn, Mk. 12,40). Sá, sem er fullur af sjálfsánægju og hroka, fær enga blessun af bæn sinni, heldur sá, sem finnur til óverðleika síns og opnar sig fyrir líknandi kærleika Guðs í algerri auðmýkt (Lk. 18,9nn). Það eru hinir fátæku í anda, sem einir geta meðtekið auð himnaríkis, og hinir hreinhjörtuðu, sem munu Guð sjá. b) Hvað erbœn? Hér verða engin tök á því að svara til fulls þessari spurningu, því hún ein út af fyrir sig er nóg rannsóknarefni í ritgerð svipaða þessari og þó meiri væri, heldur verður aðeins gerð tilraun til hinnar almennustu skýrgreiningar hugtaksins. Hin einfaldasta skýring er: Bæn er samtal sálarinnar við Guð (Colloquium Dei: Calvin, „að koma með hjarta sitt fram fyrir Guð á himnum og tala við hann:” Lúther, cit. Heiler: Das Gebet, bls. 394). Samtalsefnið getur verið margvíslegt, og má flokka bænir eftir því, hvort það er beiðni, þakkargerð, lofgerð, fyrirbæn eða annað. Allt þetta eru algeng bænarefni (sbr. Fil. 4,6, Ef. 5,19n, 6,18, Kól. 4,2, 3,16n). Þeir, sem tala saman, er annars vegar maðurinn, hins vegar Guð. En hér er aðgætandi, að ekki er um venjuleg samskipti milli tveggja persóna að ræða. Hér er það skepnan, sem ræðir við skapara sinn. Hér stendur maðurinn, sem algjörlega móttakandi, gagnvart Guði, hinum algjöra, sem er allt og ekkert er fyrir utan hann. Aðrir vildu máske snúa þessu alveg við, og segja að það sé maðurinn einn, sem talar, Guð sem hlýðir á, og kalla því bænina frekar eintal en samtal. En slíkt er ekki bæn frá trúarlegu sjónarmiði. Afstaða mannsins til Guðs, frá trúarlegu sjónarmiði, er algjörlega móttæk (passiv). Guð, skaparinn, er allt, gagnvart honum finnur maðurinn aðeins til smæðar sinnar og þess, að hann er honum háður (Kreaturgefiihl, Otto, Schlechthinnige Abhángig- keit, Schleiermacher). Hitt er sanni nær, frá trúarlegu sjónarmiði, að benda á það, að þar sem Guð er allt, og maðurinn gagnvart honum eingöngu móttækur, þá sé hér ekki um að ræða samtal í venjulegri merkingu. Hér eru ekki tveir aðilar, er standa jafnfætis. Það sem maðurinn er, er hann fyrir kraft Guðs. Og meira en það: Það er Guð, sem dregur hann til sín í bæninni. Þannig er beiðnin jafnvel verk Guðs. Ekki innihald hennar, það er takmarkað eftir ófullkomnum óskum og þrám skammsýnnar mannsálar. Heldur sjálfur verknaðurinn: Guð laðar manninn til að nálgast sig með óskir sínar og þrár. Fyrir það að maðurinn 122
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.